Sumarlesturinn hafinn á Bókasafni Vestmannaeyja

Sumarlestur bókasafnsins hófst formlega síðastliðinn laugardag með heimsókn Gunnars Helgasonar rithöfunds. Gunnar mætti og spjallaði við börn og fullorðna um starf sitt sem rithöfundur, ásamt því að kynna nýjustu bók sína sem er ekki enn komin með titil. Tilgangur sumarlestursins er fyrst og fremst að hvetja börn til að halda áfram að lesa yfir sumarmánuðina, efla þau og vekja áhuga þeirra enn frekar á lestri.

Opnað var fyrir skráningu síðstliðinn laugardag, en hægt er að skrá sig í allt sumar. Þema sumarlestursins í ár er nammiland og búið er að skreyta barnahornið á bókasafninu í takt við það.

Þeir krakkar sem skrá sig fá glæsilegan lestrarhest til að skrá lesturinn, en krakkar í 1.-4. bekk fengu einn slíkan sendan heim frá skólanum. Í lestrarhestinum leynist líka skemmtilegt spil fyrir alla fjölskylduna.

Hér fyrir neðan má sjá myndir frá deginum. Myndirnar eru frá Bókasafni Vestmannaeyja.

Nýjustu fréttir

Eyjamenn með stórsigur í Suðurlandsslagnum
Eyjarnar landa í Eyjum í dag
Útför: Þórunn Pálsdóttir
Frá mjólkurkælinum til verslunarstjóra
Herjólfur slær met 
Aglow samvera í kvöld
Suðurlandsslagur í Eyjum
Kröfu um gæsluvarðhald hafnað
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.