Gleðilegan kjördag

Gleðilegan kjördag, kæru vinir. Í dag fer fram í Ásgarði prófkjör Sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum. Kjörstaður er opinn frá kl. 14:00 til 22:00. Ég er einn af þeim 14 einstaklingum sem bjóða sig fram í prófkjörinu og sækist eftir 3. sæti. Allir frambjóðendurnir eru frábært fólk sem hefur ákveðið að gefa af tíma sínum og krafti […]
Spennandi prófkjör Sjálfstæðismanna í Eyjum

Í dag er prófkjör á lista sjálfstæðismanna í komandi sveitarstjórnarkosningum í Vestmannaeyjum. Frambjóðendur eru 14 og komu þeir fram á fundi í Ásgarði síðasta laugardag þar sem þau kynntu sig og hvað þau standa fyrir. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hófst þriðjudaginn 3. mars og lauk í gær og þá höfðu 494 greitt atkvæði á móti 150 fyrir kosningarnar […]
Pílan: Deildarkeppni lokið – Útsláttur hefst

Þann 5. mars síðastliðinn kláruðust síðustu leikir fjórðu og lokaumferðar Vöruhúsdeildarinnar. Ágúst Gísli gerði sér lítið fyrir og vann alla sína leiki í umferðinni og endar því efstur í Vöruhúsdeildinni þetta árið. Fast á hæla hans kom Garðar B. Sigurjónsson, en Garðar hafði fram að þessu gert sig heimakæran á toppi 1. deildarinnar. Í 2. […]
Fasteignaumfjöllunin – útsýni á heimsmælikvarða

Hér í Vestmannaeyjum má finna fjölbreyttar fasteignir með ólíka kosti, staðsetningu og möguleika. Í fasteignaumfjöllun Eyjafrétta skoðum við eignir sem eru til sölu hverju sinni og rýnum í hvað gerir þær áhugaverðar fyrir væntanlega kaupendur. Farið er yfir skipulag, helstu kosti og þá þætti sem geta skipt máli við val á nýju heimili. Að þessu […]
Fyrir þig en ekki sjálfa sig

Ýmsar manngerðir finnast í pólitík. Sumar hverjar birtast eins og páskaskraut rétt fyrir prófkjör, alveg glansandi glaðar en hverfa um leið og kosningakaffið kólnar. Aðrar skipta um ham eftir veðri og láta ekki sjá sig fyrr en vindar blása þeim í vil. Þá eru það þær sem með eintómu handapati hræra í loftinu einu saman […]
Laskað lið ÍBV tapaði gegn Val

Karlalið ÍBV tók á móti Val í lokaumferð Olís deildar karla í Eyjum í kvöld. Leiknum lauk með sex marka sigri Vals. Jafnræði var með liðum í upphafi leiks og skiptust liðin á að vera með forystuna. Valsmenn voru yfir með einu marki, 8-9, eftir stundarfjórðung. Valsmenn náðu tveggja marka forystu, 12-14, þegar sex mínútur […]
Athugasemd

Eyjafréttir birta í dag það sem kallað er ‘’fréttaskýring’’ eftir Tryggva Má Sæmundsson um drög að ársreikningi Vestmannaeyjabæjar fyrir 2025. Helstu kennitölur úr ársreikningnum eru birtar eftir fyrri umræðu en reikningurinn sjálfur á að vera meðhöndlaður sem trúnaðarmál þangað til eftir síðari umræðu þar sem hann getur tekið breytingum milli umræðna. Á þessu hefur greinilega […]
Dísa leiðir Eyjalistann

Uppstillingarnefnd Eyjalistans hefur nú lokið störfum og var tillaga að framboðslista kynnt og lögð fram til samþykktar á fjölmennum félagsfundi seinnipartinn í dag. Stjórn Eyjalistans tilkynnir hér með að listinn var samþykktur samhljóða og mikil ánægja var á meðal félagsfólks með listann. Þetta kemur fram í tilkynningu frá framboðinu. Arna Huld Sigurðardóttir, formaður kom fram […]
Kvenfélagið Líkn færði HSU veglega gjöf

Fulltrúar Kvenfélagsins Líknar komu í dag í heimsókn á HSU þar sem þær færðu stofnuninni nýtt ómskoðunartæki. Gjafir af þessu tagi hafa lengi verið mikilvægur þáttur í starfi félagsins, en Líknarkonur hafa í gegnum árin lagt sitt af mörkum til að bæta aðstöðu og þjónustu fyrir sjúklinga og starfsfólk. Kvenfélagið Líkn hefur um langt skeið […]
Loðnan tengir saman Vestmannaeyjar og Japan

„Loðnan er fremsta víglína japanskrar fiskneyslu,“ segir japanski innkaupastjórinn Tsuyoshi Kashima sem heimsótti Vestmannaeyjar nýlega. Í umfjöllun á vef Vinnslustöðvarinnar er fjallað um heimsókn hans og Hiroshi Okayama, sölustjóra hjá Okada Suisan. Fjallað er um mikilvægi loðnunnar fyrir japanska matarmenningu. Lesa má umfjöllunina hér að neðan. Áhugaverð umræða átti sér stað þegar tveir japanskir samstarfsaðilar […]