Segir þingmenn tala öðruvísi í Eyjum en í Reykjavík

DSC_6428_eis_cr

Aðalfundur Ísfélagsins fór fram í síðustu viku og var vel sóttur, bæði í streymi og á staðnum. Árið 2025 gekk vel hjá félaginu, bæði í bolfiski og uppsjávarfiski, þrátt fyrir að loðnuvertíð hafi brugðist. Velta félagsins nam 213 milljónum Bandaríkjadala og hagnaður var 25 milljónir dala. Félagið fékk nýtt skip á síðasta ári þegar ný […]

Emil Gautason í lokahóp u-16

Emil Gautason, leikmaður ÍBV í fótbolta, hefur verið valinn af Lúðvíki Gunnarssyni, landsliðsþjálfara u-16 karla hjá KSÍ, í leikmannahóp sem tekur þátt í UEFA Development móti sem fer fram í Finnlandi 1.-8. maí næstkomandi.  Liðið æfir saman á Íslandi fimmtudaginn 30. apríl áður en förinni er heitir til Finnlands þann 1. maí. Liðið keppir þrjá […]

Vatnslögnin er stærsta hagsmunamál íbúa í Eyjum 

Baráttan um atkvæði Eyjamanna er komin á fulla ferð eftir að þrír stjórnmálaflokkar  tilkynntu framboð til kjörstjórnar. Sjálfstæðisflokkurinn er þar á meðal og markmiðið okkar sjálfstæðismanna er bara eitt:  Að vinna meirihluta í kosningunum 16.maí. Ný vatnslögn Ég hef starfað í bæjarstjórn sl. 4 ár, sem oddviti Sjálfstæðismanna , og hef setið í Bæjarráði, þar […]

Fyrstu borsýni komin upp úr jörðu

Fyrstu sýni úr kjarnaboruninni í Vestmannaeyjum komu upp úr holunni eftir hádegi á mánudaginn síðastliðinn. Í upphafi var holan fóðruð niður á um 15 metra dýpi og er fyrsta borsýnið því tekið þaðan. Með þessu er hafinn sá hluti rannsóknarinnar sem felst í að greina eiginleika jarðlaganna með beinum sýnatökum, segir í frétt á vefnum […]

Dýpkun gekk ágætlega í gærkvöldi

Dýpkun í Landeyjahöfn gekk ágætlega í gærkvöldi og hafa aðstæður leyft áframhaldandi vinnu í morgun. Þetta kemur fram í upplýsingum frá G. Pétri Matthíassyni, forstöðumanni samskiptadeildar Vegagerðarinnar. „Dýpkun gekk ágætlega í gærkvöldi. Hún hófst aftur klukkan 08:00 í morgun og útlit er fyrir að aðstæður verði áfram ásættanlegar á þessu flóði,“ segir Pétur. Eftir erfiða […]

Öflugur rekstur lykilatriði

Aðsend mynd

Undirstaða góðs rekstrar er ábyrg fjármálastjórn, skýr og markviss forgangsröðun ásamt öflugu eftirliti með tekjum og útgjöldum. Markvisst hefur verið unnið að þessum þáttum hjá Vestmannaeyjabæ og hefur það skilað sér í jákvæðum rekstri og skuldlausum sveitarsjóði. Í því efnahagsumhverfi sem nú ríkir, þar sem bæði vextir og verðbólga eru há, skiptir miklu máli að […]

Rúmlega hundrað konur á Mey kvennaráðstefnu

Mey kvennaráðstefnan fór fram í Sagnheimum síðastliðinn laugardag við góðar undirtektir. En rúmlega hundrað konur komu saman og nutu dagsins í góðum félagsskap. Markmið Mey er að sameina konur, styrkja, gleðja og valdefla og er þetta í þriðja sinn sem ráðstefnan er haldin. Dagskráin var að vanda fjölbreytt og skemmtileg, en þrír fyrirlesarar stigu á […]

Spurt og svarað: Kjartan Vídó frá Sjálfstæðisflokknum.

Eyjafréttir kynna hér frambjóðendur fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar í Vestmannaeyjum. Hvert framboð valdi fimm fulltrúa af sínum lista til að svara spurningum um bakgrunn, áherslur og sýn á framtíð samfélagsins. Nafn: Kjartan Vídó Ólafsson Aldur: 47 ára Fjölskylda: Flutti aftur til Eyja fyrir rúmu ári og er í sambúð með Guðrúnu Lilju Friðgeirsdóttur, leikskólakennara á Sóla. […]

“Selfies” eru ekki hagsmunagæsla

Johann Ingi Ads IMG 4231 (1)

Meirihluti bæjarstjórnar Vestmannaeyja hefur árum saman lýst yfir eigin ágæti í hagsmunagæslu. Af einhverri ástæðu hefur minnihlutinn tekið undir. Raunveruleikinn segir aðra sögu. Þá vaknar einföld spurning: Hvaða hagsmuni er í raun verið að verja? Innantómt hjal Myndir og yfirlýsingar um fundi með ráðherrum og „árangur“ í samgöngumálum eru ekkert annað en innantómt hjal. Raunveruleikinn […]

ÍBV – Haukar: Einvígið heldur áfram

ÍBV og Haukar mætast í kvöld í þriðja leik liðanna í undanúrslitum Olís-deildar kvenna í handbolta. Staðan í einvíginu er jöfn, 1–1, og því ljóst að mikið er undir þegar flautað verður til leiks í Íþróttamiðstöðinni klukkan 18:30. Eyjakonur fara inn í leikinn fullar sjálfstrausts eftir sterkan sigur í síðasta leik liðanna, þar sem þær […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.