Lönduðu fullfermi í Grindavík

Vestmannaeyjaskipin Vestmannaey VE og Bergey VE lönduðu bæði fullfermi í Grindavík á föstudaginn eftir að hafa verið innan við þrjá sólarhringa að veiðum. Bæði skip voru með blandaðan afla, mest þorsk, ufsa, skarkola og ýsu. Rætt er við skipstjórana um veiðarnar á síðu Síldarvinnslunnar. Egill Guðni Guðnason, skipstjóri á Vestmannaey, var ánægður með túrinn. „Við […]
Líf og fjör á Suðurlandi: Barnamenningardagar framundan

Í kringum sumardaginn fyrsta verður mikið um dýrðir víða á Suðurlandi þegar Barnamenningardagar Suðurlands fara fram dagana 22. til 26. apríl. Þótt löng hefð sé fyrir hátíðarhöldum á þessum tíma verður nú sérstök áhersla lögð á barnamenningu, þar sem boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá og skemmtilega viðburði fyrir börn og fjölskyldur um allt Suðurland. […]
Tanja er íþróttamaður mánaðarins

Íþróttamaður mánaðarins að þessu sinni er fótbolta- og handboltakonan Tanja Harðardóttir. Tanja er 15 ára gömul og spilar bæði handbolta og fótbolta með ÍBV. Hún hefur þrátt fyrir ungan aldur tekið þátt í leikjum með meistaraflokki í fótboltanum og spilar með 4. flokki í handbolta. Hún hefur æft með U-15 og U-16 ára landsliðum Íslands […]
Tannverndarvika

Tannverndarvika TFÍ 16.-20. mars 2026 Fræðslunefnd Tannlæknafélags Íslands vekur athygli á Tannverndarvikunni, 16.-20. mars. Við hvetjum alla til þess að hugsa vel um tennur sínar og barnanna sinna ásamt því að halda þessari viku á lofti á vinnustöðum/skólum/dvalarheimilum og alls staðar í samfélaginu. Í þessari viku viljum við muna eftir tannþræðinum, við viljum velja okkur […]
Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026

Hópurinn Gyllta flóran frá Féló kom sá og sigraði aðalkeppni hönnunarkeppninnar Stíls á vegum Samfés sem fram fór í Kópavogi í gær. Fulltrúar félagsmiðstöðva víðs vegar af landinu tóku þátt og bar hópurinn frá Eyjum sigur úr bítum. Það voru þær Júlí Arna Sigurjónsdóttir, Elísabet Inga Þórisdóttir og Aþena Rós Einarsdóttir sem unnu keppnina með […]
Útboð Vestmannaeyjabæjar um heilsurækt aftur til kærunefndar

Kæra hefur verið lögð fram til kærunefndar útboðsmála vegna útboðs Vestmannaeyjabæjar um rekstur heilsuræktar við Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja. Í kærunni er því haldið fram að lykilskilyrði útboðsins séu svo íþyngjandi að þau takmarki verulega samkeppni. Sérstaklega er deilt um kröfu um að bjóðendur hafi að lágmarki 1.000 milljónir króna í eigið fé og að minnsta kosti […]
Myndband frá höfninni: Steðji VE landar

Lífið við höfnina í Vestmannaeyjum er lifandi og síbreytilegt. Hér að neðan má sjá stutt myndband sem Halldór B. Halldórsson tók við höfnina, þar sem meðal annars má fylgjast með löndun úr smábátnum Steðja VE. Slík augnablik minna á hversu stóran þátt hafið og sjávarútvegurinn eiga í daglegu lífi Eyjamanna. (meira…)
Að loknu prófkjöri

Í gær lauk prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum með frábærri þáttöku félagsmanna, en þegar yfir lauk höfðu 1178 manns mætt á kjörstað og greitt atkvæði. Ég vil þakka sérstaklega fyrir þann mikla stuðning sem ég fékk í oddvitasætið og geri allt sem í mínu valdi stendur til að standa undir því trausti sem mér hefur verið falið. […]
Bærinn eignfærir lögfræðikostnað

Eyjafréttir óskuðu eftir upplýsingum frá Vestmannaeyjabæ um lögfræðikostnað. Bærinn synjaði Eyjafréttum um nánari sundurliðun lögfræðikostnaðarins niður á hvaða mál eða verkefni kostnaðurinn tengdist með vísan til þess að slík samantekt myndi krefjast verulegrar handvirkrar vinnu. Eyjafréttir óskuðu eftir sundurliðun lögfræðikostnaðar síðustu tveggja ára, meðal annars eftir upplýsingum um hvaða mál þjónustan tengdist, hvort um væri að ræða einstök verkefni eða reglubundna […]
ÍBV tapaði gegn Haukum

Kvennalið ÍBV í handbolta tapaði gegn Haukum á útivelli, í 19. umferð Olís deildar kvenna í dag. Leiknum lauk með tveggja marka sigri Hauka, 25-23. Fyrir leikinn höfðu Eyjakonur unnið fjóra leiki röð. Haukar byrjuðu leikinn betur og voru mjög sterkar varnarlega. Eyjakonur skoruðu aðeins eitt mark á fyrstu 13 mínútum leiksins. Eftir stundarfjórðung var […]