Besta byrjun nýliða í 15 ár
Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Víðir Sigurðsson hefur birt skemmtilega pistla á Facebook-síðu sinni um Bestu deild kvenna. Í færslu hans í gær, sem akureyri.net birti, fjallaði hann meðal annars um nýliða ÍBV.

Nýliðar ÍBV hafa komið skemmtilega á óvart og unnið þrjá fyrstu leiki sína í deildinni, eins og Íslandsmeistarar Breiðabliks. Þetta er besta byrjun ÍBV í fimmtán ár en þá unnu Eyjakonur fyrstu fjóra leika sína í deildinni 2011. Þá var ÍBV einmitt nýliði í deildinni, eins og nú, og annar fyrirliði Eyjaliðsins það ár var Eyjakonan Elísa Viðarsdóttir, núverandi leikmaður Breiðabliks. Engir nýliðar í deildinni hafa byrjað eins vel á þessum fimmtán árum. 

Þess má til gamans geta að núverandi þjálfari liðsins, Jón Ólafur Daníelsson, var einnig þjálfari liðsins árið 2011. 

Þá fjallaði hann líka um markadrottninguna Allison Grace Lowrey, framherja ÍBV. Allison Lowrey, sem varð markadrottning 1. deildarinnar 2025 með ÍBV, skoraði 25 mörk, og var jafnframt kjörin besti leikmaður deildarinnar, heldur sínu striki og er nú markahæst í Bestu deildinni með þrjú mörk fyrir nýliðina frá Eyjum í fyrstu þremur umferðunum.

Nýjustu fréttir

Milena í eldlínunni með U16 ára landsliðinu
„Þetta hefur verið dans á rósum“ – hættir eftir 50 ára starf
Fær tveggja leikja bann eftir olnbogaatvik gegn FH
Bærinn svarar gagnrýni: Segja starfsánægju hafa aukist síðustu ár
Mugison með tónleika á Skansinum
Eyjagöng fá alþjóðlegan sérfræðing í neðansjávargangagerð til liðs við sig
Umræða skapast um starfsumhverfi hjá Vestmannaeyjabæ
Framkvæmdir hafnar í Miðgerði
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.