Hvatningarverðlaun afhent og styrkir veittir til skólaþróunar
Ljósmynd/vestmannaeyjar.is

Metnaður, nýsköpun og jákvætt skólastarf voru í forgrunni þegar fræðsluráð Vestmannaeyja afhenti hvatningarverðlaun sín og úthlutaði styrkjum úr Þróunarsjóði leik-, grunn- og tónlistarskóla í Einarsstofu á miðvikudag. Fjöldi verkefna sem miða að auknu útinámi, skapandi kennslu og bættri námsupplifun barna hlaut stuðning að þessu sinni. Frá þessu var greint á vef bæjaryfirvalda í dag.

Fræðsluráð veitti að þessu sinni fjórum starfsmönnum hvatningarverðlaun fyrir framúrskarandi framlag til fræðslustarfs. Markmið verðlaunanna er að vekja athygli á því sem vel er gert í skólunum og draga fram það öfluga og mikilvæga starf sem unnið er á hverjum degi í þágu barna og ungmenna. Verðlaunahafarnir eiga það sameiginlegt að hafa með metnaði, fagmennsku og jákvæðu viðmóti lagt sitt af mörkum til að efla skólasamfélagið og skapa gott umhverfi til náms og þroska.

 

Jarl Sigurgeirsson – Söngur á sal

Jarl hefur um árabil sinnt söng á sal af miklum metnaði og gert hann að föstum og mikilvægum þætti í skólastarfinu. Með söngstundunum skapast vettvangur þar sem nemendur koma saman, njóta samveru og taka þátt í sameiginlegri upplifun sem eflir bæði gleði og samveru. Framlag Jarls hefur haft jákvæð áhrif á skólamenningu og styrkt samfélagsandann innan skólans.

 

Erla María Sigurgeirsdóttir og Gréta Guðný Snorradóttir –  kennsla elsta árgangs í Kirkjugerði

Erla María og Gréta Guðný hafa á skömmum tíma reynst afar verðmæt viðbót við starfsfólk Kirkjugerðis. Þær komu til starfa með góða reynslu úr leikskólaumhverfinu og hafa frá upphafi unnið af fagmennsku, krafti og jákvæðu viðmóti. Framlag þeirra hefur verið bæði sýnilegt og mikilvægt og með störfum sínum hafa þær stutt vel við starfsemi leikskólans og lagt sitt af mörkum til að efla gott og uppbyggilegt skólastarf.

 

Linda Óskarsdóttir, sérkennslustjóri á Víkinni

Linda er fyrirmyndarkennari sem mætir börnum af hlýju, fagmennsku og ríkri ábyrgðarkennd. Hún hefur einstaka hæfni til að greina þarfir barna og skapa öruggt og styðjandi umhverfi þar sem þau geta dafnað og notið sín. Þá er hún lausnamiðuð, úrræðagóð og sterkur leiðtogi sem styður samstarfsfólk sitt vel og leggur sig fram um að finna árangursríkar leiðir fyrir hvert barn. Framlag Lindu hefur verið bæði mikilvægt og eftirtektarvert í skólasamfélaginu.

 

Markmið Þróunarsjóðs leik-, grunn- og tónlistarskóla er að stuðla að framþróun og eflingu innra starfs í skólum Vestmannaeyjabæjar og hvetja starfsfólk til þróunar og nýsköpunar í skólastarfi. Með sjóðnum skapast hvati til nýrra verkefna sem auka fjölbreytni í skólastarfi og nýtast bæði starfsfólki og nemendum. Eftirtalin verkefni hlutu styrk að þessu sinni:

 

Drullueldhús á Sóla

Markmið verkefnisins er að koma upp aðstöðu á leikskólalóð Sóla þar sem börn fá tækifæri til að auka fjölbreytni í útinámi. Þar gefst þeim kostur á að kanna og upplifa náttúruna á skapandi og frjálsan hátt. Með verkefninu er leitast við að efla leik og nám með því að nýta náttúrulegan efnivið og hvetja börn til að prófa sig áfram, uppgötva og læra í gegnum leik. Að verkefninu standa Valgerður Jónu Þorsteinsdóttir, Guðrún Lilja Friðgeirsdóttir og Hildur Dögg Jónsdóttir.

 

Einfaldar tilraunir

Markmið verkefnisins er að nemendur taki þátt í einföldum tilraunum og öðlist skilning á því hvernig hlutir virka í raunveruleikanum. Jafnframt er leitast við að gera námið lifandi og áhugavert með því að gefa nemendum tækifæri til að prófa sig áfram og læra af eigin reynslu. Áhersla er lögð á að nemendur spyrji spurninga, velti fyrir sér niðurstöðum og útskýri það sem þeir sjá á sinn eigin hátt. Bryndís Bogadóttir stendur að verkefninu.

 

Bætt útinámsaðstaða

Markmið verkefnisins er að kynna börnum í Kirkjugerði nærumhverfi sitt og lífríki Vestmannaeyja á lifandi og áhugaverðan hátt. Jafnframt er leitast við að efla tengsl þeirra við náttúruna og samþætta hreyfingu og nám í daglegu starfi. Áhersla er lögð á að styrkja sjálfstraust, seiglu og vellíðan barna með því að gefa þeim tækifæri til að uppgötva og læra á eigin forsendum. Að verkefninu standa Gréta Guðný Snorradóttir og Erla María Sigurgeirsdóttir.

Nýjustu fréttir

Áfram Noregur í kvöld – Heimisáhrifin virka
Draumurinn orðinn að veruleika
Einstakt safn Magnúsar vakti forvitni á Goslokahátíð
Þrjár vikur í Þjóðhátíð – uppbyggingin hafin í Herjólfsdal
Sumarlesturinn hefur aldrei farið betur af stað
Áform um þrjú ný einbýlishús við Reglubraut
Evrópusambandið, meira en tollabandalag
50 ár frá opnun sundlaugar Vestmannaeyja

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.