Bókunarkerfi Herjólfs niðri eftir eldsvoða í Amsterdam
herjolf_bjarnarey
Herjólfur. Eyjafréttir/Eyjar.net: Tryggvi Már Sæmundsson

Óheppnin heldur áfram að elta Herjólf en bókunarkerfi félagsins hefur legið niðri stóran hluta dagsins vegna eldsvoða í gagnaveri í Amsterdam þar sem kerfið er hýst.

Frá þessu er greint í tilkynningu á samfélagsmiðlum Herjólfs þar sem fram kemur að kviknað hafi í gagnaverinu í morgun og að öll fjarskipti við svæðið liggi niðri.

„Ástæðan er sú að eigandi bókunarvélar okkar hýsir kerfið sitt í gagnaveri í Amsterdam sem kviknaði í í morgun,“ segir í tilkynningunni.

Unnið er að því að slökkva eldinn og verður hafist handa við að koma kerfinu aftur í gang um leið og samband næst við höfuðstöðvar þjónustunnar.

Herjólfur biður farþega um þolinmæði og skilning á meðan unnið er að lausn málsins. Þrátt fyrir vandræðin stefnir Herjólfur áfram á siglingar til Landeyjahafnar á næstu dögum.

„Við komum til með að gefa frá okkur tilkynningu vegna siglinga um leið og starfsmenn okkar komast inn í bókunarkerfið,“ segir í tilkynningunni.

Nýjustu fréttir

Kynningarfundur um verndaráætlun Surtseyjar
Styrkir afhentir við hátíðlega athöfn í Oddfellow – uppfært
Humar í fyrsta sinn á Matey
Vel veiðist hjá Eyjunum
​​Kjörsókn dróst saman í ​Eyjum
Samgönguvandinn bitnar á Eyjagöngum
Kristín Klara í lokahóp u-19
„Það er ekki hlutverk ríkisins að bæta þetta tjón“
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.