Herjólfur: Áætlun föstudagsins gefin út
bidrod_bbilar_herj_2022
Herjólfur í Landeyjahöfn. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Enn liggur bókunarkerfið Herjólfs niðri og ekki hægt að bóka né breyta, segir í tilkynningu frá skipafélaginu. Þá segir: „En við viljum þó upplýsa um siglingaáætlun morgundagsins.”

Föstudagur 8.maí
Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 08:00, 10:00, 19:30, 21:30.

(Áður ferðir kl. 07:00, 09:30, 17:00 og 22:00).

Brottför frá Landeyjahöfn kl. 09:00, 11:00, 20:45, 23:15

(Áður ferðir kl. 08:15, 10:45)

Farþegar sem eru að ferðast með ferjunni á morgun eru beðnir um að mæta tímalega.

Vestmannaeyjar:
Farþegar sem áttu bókað kl. 07:00 og 17:00 frá Vestmannaeyjum eiga því nú bókað kl. 08:00 og 19:30. Ferðir kl. 10:00 og 21:30 koma nýjar inn í áætlun. Ekki er hægt að bóka í þær að svo stöddu, en þeir farþegar sem vilja nýta sér þær eru beðnir um að koma á skrifstofu Herjólfs í fyrramálið.

Landeyjahöfn:
Farþegar sem áttu bókað kl. 10:45 frá Landeyjahöfn eiga því nú bókað kl. 11:00.  Það ætti að vera laust pláss í ferð kl. 09:00 og 23:15.

Að endingu er ítrekað að starfsfólk Herjólfs getur ekki bókað né breytt ferðum sem stendur. „Við munum upplýsa viðskiptavini um leið og við fáum frekari fréttir.”

Þessu tengt: Bókunarkerfi Herjólfs niðri eftir eldsvoða í Amsterdam

Nýjustu fréttir

„Þetta hefur verið dans á rósum“ – hættir eftir 50 ára starf
Fær tveggja leikja bann eftir olnbogaatvik gegn FH
Bærinn svarar gagnrýni: Segja starfsánægju hafa aukist síðustu ár
Mugison með tónleika á Skansinum
Eyjagöng fá alþjóðlegan sérfræðing í neðansjávargangagerð til liðs við sig
Umræða skapast um starfsumhverfi hjá Vestmannaeyjabæ
Framkvæmdir hafnar í Miðgerði
Landa fyrir austan
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.