ÍBV biðst afsökunar á ummælum í garð Hafdísar
handbolti-18.jpg
Ljósmynd/úr safni

Handknattleiksdeild ÍBV hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem deildin fordæmir mismunun og biðst afsökunar á ummælum sem stuðningsmaður ÍBV lét falla í garð Hafdísar Renötudóttur í öðrum leik úrslitaeinvígis Olís deildar kvenna. Í yfirlýsingunni kemur fram að um hafi verið að ræða einn einstakling en ekki stuðningsmannasveit eða stuðningsmenn ÍBV almennt. Þá segir að brugðist hafi verið við málinu innan félagsins og viðkomandi settur í tímabundið bann. Lesa má yfirlýsinguna hér að neðan.

Yfirlýsing frá handknattleiksdeild ÍBV

Handknattleiksdeild ÍBV fordæmir alla mismunum í hvaða formi sem hún birtist og harmar orð sem voru látin falla af stuðningsmanni ÍBV gagnvart Hafdísi Renötudóttur í leik 2 í úrslitum Olís deildar kvenna.

Það skal tekið fram að þetta var einn aðili sem lét þessi orð falla en ekki stuðningsmannasveit ÍBV eða stuðningsmenn ÍBV yfir höfuð.

Það hefur verið tekið á þessu máli innanbúðar eftir að forsvarsmenn handknattleiksdeildarinnar fengu veður af málinu og þessi tiltekni aðili settur í tímabundið bann.

Fyrir hönd handknattleiksdeild ÍBV biðjum við Hafdísi Renötudóttur afsökunar og vonum að þetta muni ekki hafa meiri áhrif á þetta glæsilega einvígi sem hefur átt sér stað og stendur enn yfir.

 

Fyrir hönd Handknattleiksdeildar ÍBV

Garðar B. Sigurjónsson

Nýjustu fréttir

Fjórði flokkur karla frá ÍBV tók þátt í Rey Cup
Miðasala á Þjóðhátíð fór á fullt skrið í gær
Undirbúningur Þjóðhátíðar að ná hámarki
Fjórði flokkur kvenna frá ÍBV tók þátt í Rey Cup
ÍBV tapaði gegn Breiðablik á Kópavogsvelli
Golfkerran tók stefnuna fram af Hamrinum
Af miðunum í þjóðhátíðarstuð
Er betra að vita en halda?
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.