Góð spá og lokaspretturinn hafinn fyrir Þjóðhátíð

Undirbúningur fyrir Þjóðhátíð 2026 hefur gengið einstaklega vel og langtímaspár benda til þess að veðrið verði með besta móti. Jónas Guðbjörn Jónsson, formaður Þjóðhátíðarnefndar, segir þó að það sé fyrst og fremst fólkið, samheldnin og gestrisnin sem geri hátíðina að því sem hún er. „Hundruð sjálfboðaliða, starfsmanna og samstarfsaðila hafa lagt hönd á plóg síðustu […]
Hafbotnsmælingum lokið – Komnir niður á 136 metra í Landeyjasandi

Kjarnaborunin á Landeyjasandi vegna rannsókna fyrir fyrirhuguð Eyjagöng er komin niður á 136 metra dýpi. Markmiðið er að bora niður á 300 metra en gert er ráð fyrir að boruninni ljúki í ágúst. Þá er hljóðendurvarpsmælingum í Eyjasundi lokið eftir að alls voru mældir 282 kílómetrar á sjö mælingadögum. Haraldur Pálsson, framkvæmdastjóri Eyjaganga ehf., segir […]
Flugmenn sviptir flugleyfi vegna lágflugs yfir Eyjum

Tveir flugmenn hafa verið sviptir flugleyfi tímabundið vegna lágflugs farþegaþotu Icelandair yfir Vestmannaeyjum þann 11. apríl síðastliðinn. Annar flugmannanna var sviptur leyfi í tvö ár en hinn í eitt ár. Þetta kemur fram í frétt RÚV og er haft eftir Þórhildi Elínu Elínardóttur, samskiptastjóra Samgöngustofu. Ákvörðunin hefur verið send þeim flugmönnum sem málið varðar. Flugstjóri […]
Heildarafli dróst saman um 29 prósent í júní

Landaður afli íslenskra skipa nam rúmlega 32 þúsund tonnum í júní síðastliðnum. Það er 29 prósent minni afli en í sama mánuði í fyrra, samkvæmt tölum Hagstofu Íslands sem birtar voru í síðustu viku. Samdrátturinn skýrist einkum af minni uppsjávarafla. Engum kolmunna eða makríl var landað í júní í ár, en í júní 2025 nam […]
Lögregla hættir rannsókn á andlátsmálinu á Hraunbúðum

Lögreglan á Suðurlandi hefur hætt rannsókn á andláti á Hraunbúðum í Vestmannaeyjum. Ákvörðunin var tekin í dag eftir að endanleg krufningsskýrsla barst lögreglu fyrir helgi og farið hafði verið yfir hana. Þetta staðfestir Rúnar Þór Steingrímsson, lögreglufulltrúi hjá lögreglunni á Suðurlandi, í svari við fyrirspurn Eyjafrétta. „Lögreglan á Suðurlandi hætti í dag rannsókn á andlátsmálinu […]
Lóðaumsókn fyrir hvítu tjöldin hafin

Lóðaumsókn fyrir hvítu tjöldin á Þjóðhátíð 2026 opnaði í morgun og stendur umsóknarfrestur til miðvikudags. Við umsókn velja umsækjendur hvaða götur þeir vilja fá úthlutaðar og raða þeim í fyrsta, annað og þriðja val. Í framhaldinu er hverjum umsækjanda úthlutað lóð. Þeir sem sækja um þurfa að staðfesta úthlutun sína dagana 25. og 26. júlí. […]
Herjólfur kominn í viðgerðarstopp

Baldur tók við siglingum milli lands og Eyja í morgun, mánudaginn 20. júlí, á meðan viðgerður rafmótor er settur aftur í Herjólf IV. Herjólfur hélt til Þorlákshafnar eftir síðustu ferð sína í gærkvöldi þar sem mótorinn verður settur í ferjuna. Samkvæmt upplýsingum frá Herjólfi ohf. er áætlað að verkið taki allt að fjóra sólarhringa. Á […]
Eyjakonur töpuðu gegn Þór/KA á Akureyri

Kvennalið ÍBV laut í lægra haldi, 2-1, gegn Þór/KA í 12. umferð Bestu deildar kvenna, á Akureyri í dag. Þór/KA náði forystunni í leiknum strax á 7. mínútu leiksins með marki frá Erin Flurey. Allison Patricia Clark fékk dauðafæri til að jafna fyrir ÍBV eftir tæpan hálftíma þegar hún slapp ein í gegn á móti […]
ÍBV og KA skildu jöfn á Hásteinsvelli

ÍBV tók á móti KA í 15. umferð Bestu deildar karla á Hásteinsvelli í dag en liðið skildu jöfn 2-2 í miklum baráttuleik. Eyjamenn komu af krafti inn í leikinn og voru mun öflugri í fyrri hálfleik. Omar Sowe komst nálægt því að koma ÍBV yfir eftir tæplega 20 mínútur þegar hann átti skot í […]
Laxey boðar til samráðs- og upplýsingafundar

Laxey boðar íbúa Vestmannaeyja og aðra áhugasama til samráðs- og upplýsingafundar næstkomandi þriðjudag. Þar verður meðal annars farið yfir stöðu uppbyggingar fyrirtækisins, umhverfis- og sjálfbærnimál, fiskheilbrigði og áhrif starfseminnar á samfélagið. Fundurinn verður haldinn í seiðastöð Laxey að Strandvegi 104 þriðjudaginn 21. júlí klukkan 17.00. Í tilkynningu á vef Laxey kemur fram að íbúum Vestmannaeyja, […]
Djamm Original heldur í hefðirnar – Frá Bridgerton í aldamótastuð

Það var mikið um dýrðir hjá vinkvennahópnum Djamm Original sem hélt sína árlegu árshátíð í Vestmannaeyjum í gær. Um er að ræða tvo vinahópa, úr árgöngunum 1998 og 1999, sem hafa haldið þennan skemmtilega sið frá árinu 2018. Dagskráin var fjölbreytt og greinilegt að metnaður hafði verið lagður í daginn. Gleðin hófst heima hjá Bylgju […]
Tvöfaldur leikdagur hjá ÍBV

Bæði meistaraflokkslið ÍBV verða í eldlínunni í Bestu deildunum í dag. Karlaliðið tekur á móti KA á Hásteinsvelli klukkan 14.00 en tveimur tímum síðar hefja Eyjakonur leik gegn Þór/KA á VÍS-vellinum á Akureyri. Mikilvæg stig í boði á Hásteinsvelli Það er mikið undir þegar ÍBV og KA mætast á Hásteinsvelli. Eyjamenn eru í áttunda sæti […]
Guðný Geirsdóttir – Íþróttamaður mánaðarins

Eyjakonan og markvörður kvennaliðs ÍBV í fótbolta, Guðný Geirsdóttir, er íþróttamaður mánaðarins. Guðný hefur verið frábær í markinu hjá ÍBV í sumar og þá sérstaklega í síðustu leikjum. Hún hefur tvisvar sinnum verið valin í lið umferðarinnar í tímabilinu, varði vítaspyrnu gegn Stjörnunni, ásamt því að eiga frábæran leik í sigri ÍBV á FH í […]
Vestmannaeyjar í lykilhlutverki á 100 ára afmæli Landhelgisæslunnar

Landhelgisgæsla Íslands fagnaði 100 ára afmæli sínu með fjölbreyttum viðburðum víða um land. Meðal annars hefur verið boðið til opins húss í flugskýli Landhelgisgæslunnar á Reykjavíkurflugvelli þar sem almenningur hefur getað kynnt sér starfsemina, þyrlur, flugvél, björgunarbáta, köfunar- og sprengjueyðingarbúnað, sjókort og annan sérhæfðan búnað sem gegnir mikilvægu hlutverki í öryggi þjóðarinnar. Einn af hápunktum […]
Þjónustuþegum í lengdri viðveru fjölgar um helming

Þjónustuþegum í lengdri viðveru fyrir fötluð börn á aldrinum 10 til 16/18 ára í Vestmannaeyjum mun fjölga um helming í haust. Því er þörf á auknu fjármagni til að mæta aukinni þjónustuþörf. Þetta kom fram á síðasta fundi fjölskyldu- og tómstundaráðs Vestmannaeyja þar sem sviðsstjóri fór yfir stöðu mála. Ráðið samþykkti að þörf væri á […]
Frá gamla hrauninu að framkvæmdum við Íþróttamiðstöðina

Halldór B. Halldórsson var á ferðinni á vestanverðri Heimaey í dag og tók upp meðfylgjandi myndband. Ferðin hefst í gamla hrauninu og þaðan liggur leiðin út á Hamar og um golfvöllinn, þar sem meðal annars glittir í Herjólfsdal. Að lokum er komið við á byggingarsvæðinu við Íþróttamiðstöðina, þar sem unnið er að nýrri viðbyggingu. (meira…)
Stuðningsmaður KFS vinnur 700 þúsund

Stuðningsmaður KFS úr Vestmannaeyjum vann rúmar 700 þúsund krónur á Miðvikudagsseðilinn hjá Íslenskum getraunum. Stuðningsmaðurinn keypti sparnaðarkerfi með fjórum tvítryggðum og fjórum þrítryggðum leikjum sem kostaði 1.872 krónur. KFS, sem leikur núna í 5. deild Íslandsmótsins í knattspyrnu er samt sem áður næst stærsta félag landsins í sölu getraunaseðla. Sala getrauna er ein stærsta fjáröflun […]
Vestmannaeyja-Þór ruddi brautina fyrir Landhelgisgæslu Íslands

Árið 1918 markaði tímamót í sögu Vestmannaeyja og Íslands. Ísland varð fullvalda ríki, Alþingi samþykkti lög um stofnun Vestmannaeyjakaupstaðar sem tóku gildi 1. janúar 1919 og sama ár var Björgunarfélag Vestmannaeyja stofnað. Með þeirri ákvörðun hófst vegferð sem átti eftir að hafa áhrif langt út fyrir Eyjarnar og leggja grunn að síðarri stofnun Landhelgisgæslu Íslands. […]
Klara Káradóttir framlengir við ÍBV

Hin unga og efnilega Klara Káradóttir hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við handknattleiksdeild ÍBV. ÍBV greindi frá á samfélagsmiðlum sínum í dag. Í tilkynningu ÍBV segir, ,,Klara er efnileg handknattleikskona sem leikur í stöðu línumanns. Hún lék síðasta vetur í liði 3. flokks ÍBV sem varð bikarmeistari ásamt því að vera hluti af […]
Breyta hlutverki æskulýðs- og tómstundafulltrúa

Fjölskyldu- og tómstundaráð Vestmannaeyja hefur samþykkt tillögu að breyttu hlutverki æskulýðs- og tómstundafulltrúa sveitarfélagsins. Samkvæmt breytingunum verður starfið skilgreint sem starf tómstunda-, íþrótta- og forvarnarfulltrúa og því fylgir ný starfslýsing. Málið var tekið fyrir á síðasta fundi ráðsins þar sem sviðsstjóri kynnti hugmyndir að breyttu hlutverki. Markmið starfsins verður að bera faglega, rekstrarlega og stjórnunarlega […]