Flugmenn sviptir flugleyfi vegna lágflugs yfir Eyjum
Farþegaþota Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjabæ þann 11. apríl síðastliðinn. Mynd/skjáskot

Tveir flugmenn hafa verið sviptir flugleyfi tímabundið vegna lágflugs farþegaþotu Icelandair yfir Vestmannaeyjum þann 11. apríl síðastliðinn. Annar flugmannanna var sviptur leyfi í tvö ár en hinn í eitt ár.

Þetta kemur fram í frétt RÚV og er haft eftir Þórhildi Elínu Elínardóttur, samskiptastjóra Samgöngustofu. Ákvörðunin hefur verið send þeim flugmönnum sem málið varðar.

Flugstjóri vélarinnar, sem var í sínu síðasta flugi fyrir Icelandair þegar atvikið átti sér stað, var sviptur flugleyfi í 24 mánuði. Flugmaðurinn sem flaug með honum var sviptur leyfi í 12 mánuði. Sá hefur ekki fengið að fljúga á meðan rannsókn málsins stóð yfir.

Flugmennirnir geta kært ákvörðun Samgöngustofu til innviðaráðuneytisins. Ekki liggur fyrir hvort þeir hafi nýtt sér þann rétt. Samgöngustofa hefur enn ekki tekið ákvörðun gagnvart Icelandair vegna málsins.

Innri rannsókn Icelandair lokið

Icelandair hefur jafnframt lokið innri rannsókn sinni á atvikinu. Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, staðfesti það í skriflegu svari við fyrirspurn RÚV.

Niðurstöður innri rannsókna félagsins séu trúnaðarmál, en markmið þeirra sé ávallt að auka öryggi. Í skýrslunni komi meðal annars fram tillögur sem miði að því.

Lágflug vélarinnar vakti mikla athygli í Vestmannaeyjum og skaut mörgum bæjarbúum skelk í bringu. Atvikið náðist á myndbönd sem fóru víða á samfélagsmiðlum.

Hér má sjá myndband af vélinni fljúga yfir Heimaey.

Nýjustu fréttir

Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.