Góð spá og lokaspretturinn hafinn fyrir Þjóðhátíð

Undirbúningur fyrir Þjóðhátíð 2026 hefur gengið einstaklega vel og langtímaspár benda til þess að veðrið verði með besta móti. Jónas Guðbjörn Jónsson, formaður Þjóðhátíðarnefndar, segir þó að það sé fyrst og fremst fólkið, samheldnin og gestrisnin sem geri hátíðina að því sem hún er. „Hundruð sjálfboðaliða, starfsmanna og samstarfsaðila hafa lagt hönd á plóg síðustu […]
Hafbotnsmælingum lokið – Komnir niður á 136 metra í Landeyjasandi

Kjarnaborunin á Landeyjasandi vegna rannsókna fyrir fyrirhuguð Eyjagöng er komin niður á 136 metra dýpi. Markmiðið er að bora niður á 300 metra en gert er ráð fyrir að boruninni ljúki í ágúst. Þá er hljóðendurvarpsmælingum í Eyjasundi lokið eftir að alls voru mældir 282 kílómetrar á sjö mælingadögum. Haraldur Pálsson, framkvæmdastjóri Eyjaganga ehf., segir […]
Flugmenn sviptir flugleyfi vegna lágflugs yfir Eyjum

Tveir flugmenn hafa verið sviptir flugleyfi tímabundið vegna lágflugs farþegaþotu Icelandair yfir Vestmannaeyjum þann 11. apríl síðastliðinn. Annar flugmannanna var sviptur leyfi í tvö ár en hinn í eitt ár. Þetta kemur fram í frétt RÚV og er haft eftir Þórhildi Elínu Elínardóttur, samskiptastjóra Samgöngustofu. Ákvörðunin hefur verið send þeim flugmönnum sem málið varðar. Flugstjóri […]
Heildarafli dróst saman um 29 prósent í júní

Landaður afli íslenskra skipa nam rúmlega 32 þúsund tonnum í júní síðastliðnum. Það er 29 prósent minni afli en í sama mánuði í fyrra, samkvæmt tölum Hagstofu Íslands sem birtar voru í síðustu viku. Samdrátturinn skýrist einkum af minni uppsjávarafla. Engum kolmunna eða makríl var landað í júní í ár, en í júní 2025 nam […]