Heildarafli dróst saman um 29 prósent í júní
Botnfiskafli jókst milli ára og nam tæplega 30 þúsund tonnum í júní. Það er sjö prósent meiri afli en í sama mánuði í fyrra. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Landaður afli íslenskra skipa nam rúmlega 32 þúsund tonnum í júní síðastliðnum. Það er 29 prósent minni afli en í sama mánuði í fyrra, samkvæmt tölum Hagstofu Íslands sem birtar voru í síðustu viku.

Samdrátturinn skýrist einkum af minni uppsjávarafla. Engum kolmunna eða makríl var landað í júní í ár, en í júní 2025 nam samanlagður afli þessara tegunda rúmlega 14 þúsund tonnum.

Botnfiskafli jókst hins vegar milli ára og nam tæplega 30 þúsund tonnum í júní. Það er sjö prósent meiri afli en í sama mánuði í fyrra.

Á tólf mánaða tímabilinu frá júlí 2025 til júní 2026 var alls landað rúmlega 1,1 milljón tonna. Það er 13 prósent aukning frá sama tímabili ári áður.

Uppsjávarafli jókst um 30 prósent á tímabilinu og vegur loðnuafli þungt í þeirri aukningu. Á móti dróst botnfiskafli saman um sex prósent og flatfiskafli um níu prósent.

Nýjustu fréttir

Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.