Breyta hlutverki æskulýðs- og tómstundafulltrúa
radhustrod_ráðhús_merki_cr
Ráðhús Vestmannaeyja. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Fjölskyldu- og tómstundaráð Vestmannaeyja hefur samþykkt tillögu að breyttu hlutverki æskulýðs- og tómstundafulltrúa sveitarfélagsins. Samkvæmt breytingunum verður starfið skilgreint sem starf tómstunda-, íþrótta- og forvarnarfulltrúa og því fylgir ný starfslýsing.

Málið var tekið fyrir á síðasta fundi ráðsins þar sem sviðsstjóri kynnti hugmyndir að breyttu hlutverki. Markmið starfsins verður að bera faglega, rekstrarlega og stjórnunarlega ábyrgð á deild tómstunda-, íþrótta- og forvarnarmála.

Í starfinu felst meðal annars stefnumótun, þróun, samræming og dagleg stjórnun á þjónustu sveitarfélagsins á sviði tómstunda, íþrótta og forvarna. Áhersla verður lögð á öfluga þjónustu fyrir íbúa á öllum aldri.

Ráðið samþykkti tillöguna að breyttu hlutverki og starfslýsingu. Í bókun ráðsins kemur fram að það taki jákvætt í breytingarnar og telji þær styðja við markvissa uppbyggingu og áframhaldandi þróun málaflokksins í þágu íbúa sveitarfélagsins.

Nýjustu fréttir

Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.