Herjólfur kominn í viðgerðarstopp
Baldur tók við siglingum milli lands og Eyja í morgun á meðan viðgerður rafmótor er settur aftur í Herjólf
Herjólfur hélt til Þorlákshafnar í gærkvöldi þar sem viðgerður rafmótor verður settur aftur í skipið. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Baldur tók við siglingum milli lands og Eyja í morgun, mánudaginn 20. júlí, á meðan viðgerður rafmótor er settur aftur í Herjólf IV.

Herjólfur hélt til Þorlákshafnar eftir síðustu ferð sína í gærkvöldi þar sem mótorinn verður settur í ferjuna. Samkvæmt upplýsingum frá Herjólfi ohf. er áætlað að verkið taki allt að fjóra sólarhringa.

Á meðan sinnir Baldur átta ferðum á dag milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar.

Brottfarir frá Vestmannaeyjum:
Kl. 07:00, 09:00, 11:00, 13:00, 16:00, 18:00, 20:00 og 22:00.

Brottfarir frá Landeyjahöfn:
Kl. 08:00, 10:00, 12:00, 14:00, 17:00, 19:00, 21:00 og 23:00.

Stefnt er að því að Herjólfur komi aftur í áætlun eins fljótt og verða má að uppsetningu lokinni. Herjólfur mun þá taka við átta ferða áætlun og sinna henni til og með 23. ágúst.

Nýjustu fréttir

Herjólfur aftur til Landeyjahafnar
ÍBV getur endurheimt annað sætið með sigri á Gróttu
Ásmundur les úr Sögum af Vellinum á Safnahelgi
Hrekkjavökuballið í Alþýðuhúsinu – myndir
Einstæð móðir vann rúmar 45 milljónir í Lottó
Bókakynningu Steinunnar frestað til sunnudags
Kæru vegna útboðs heilsuræktar hafnað – skilmálarnir ekki metnir efnislega
Loðnan ofarlega á baugi hjá kaupendum í Asíu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.