Eyjakonur töpuðu gegn Þór/KA á Akureyri
Úr leik ÍBV og Vals á Hásteinsvelli. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Kvennalið ÍBV laut í lægra haldi, 2-1, gegn Þór/KA í 12. umferð Bestu deildar kvenna, á Akureyri í dag. 

Þór/KA náði forystunni í leiknum strax á 7. mínútu leiksins með marki frá Erin Flurey. Allison Patricia Clark fékk dauðafæri til að jafna fyrir ÍBV eftir tæpan hálftíma þegar hún slapp ein í gegn á móti Alessandra Augur, markverði Þór/KA, en lét verja frá sér. Þór/KA með 1-0 forystu í hálfleik. 

Þór/KA komust í 2-0 strax á upphafsmínútum síðari hálfleiks með marki frá Bríeti Jóhannsdóttur. Eyjakonur náðu að minnka muninn tíu mínútum síðar þegar Avery Mae Vanderven skallaði hornspyrnu Þóru Bjargar Stefánsdóttir í netið. Þóra Björg komst næst því að jafna fyrir ÍBV þegar tíu mínútur voru til leiksloka þegar hún skallaði boltann rétt fram hjá. Nær komust Eyjakonur ekki og 2-1 tap á útivelli því niðurstaðan.

ÍBV er áfram í fjórða sæti deildarinnar með 20 stig. Þór/KA kom sér úr fallsæti og sitja í sjöunda sæti með 12 stig.

12. umferð Bestu deildar kvenna:

Fram 2 – 1 Víkingur R.

Þór/KA 2 – 1 ÍBV

Mánudagur

19:15 Grindavík/Njarðvík – Þróttur R.

Þriðjudagur

19:15 Valur – Breiðablik

19:15 FH – Stjarnan

Nýjustu fréttir

Þetta er mögnuð íþrótt sem allir geta spilað
Bærinn ósammála ráðuneytinu í þremur uppsagnarmálum
Bleikt boð hjá Krabbavörn Vestmannaeyja
Smári Jökull hjá Sýn 
Sjálfkeyrandi bílar í Eyjum? Ráðherra tekur jákvætt í hugmyndina
Ítalía mun alltaf eiga sérstakan stað í hjartanu
Vestmannaeyjabær óskar eftir niðurstöðum úr PISA
Sæðisprufan hans Sigurgeirs vakti mikla kátínu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.