Eyjakonur töpuðu gegn Þór/KA á Akureyri

Kvennalið ÍBV laut í lægra haldi, 2-1, gegn Þór/KA í 12. umferð Bestu deildar kvenna, á Akureyri í dag. Þór/KA náði forystunni í leiknum strax á 7. mínútu leiksins með marki frá Erin Flurey. Allison Patricia Clark fékk dauðafæri til að jafna fyrir ÍBV eftir tæpan hálftíma þegar hún slapp ein í gegn en Alessandra […]
ÍBV og KA skildu jöfn á Hásteinsvelli

ÍBV tók á móti KA í 15. umferð Bestu deildar karla á Hásteinsvelli í dag en liðið skildu jöfn 2-2 í miklum baráttuleik. Eyjamenn komu af krafti inn í leikinn og voru mun öflugri í fyrri hálfleik. Omar Sowe komst nálægt því að koma ÍBV yfir eftir tæplega 20 mínútur þegar hann átti skot í […]
Laxey boðar til samráðs- og upplýsingafundar

Laxey boðar íbúa Vestmannaeyja og aðra áhugasama til samráðs- og upplýsingafundar næstkomandi þriðjudag. Þar verður meðal annars farið yfir stöðu uppbyggingar fyrirtækisins, umhverfis- og sjálfbærnimál, fiskheilbrigði og áhrif starfseminnar á samfélagið. Fundurinn verður haldinn í seiðastöð Laxey að Strandvegi 104 þriðjudaginn 21. júlí klukkan 17.00. Í tilkynningu á vef Laxey kemur fram að íbúum Vestmannaeyja, […]
Djamm Original heldur í hefðirnar – Frá Bridgerton í aldamótastuð

Það var mikið um dýrðir hjá vinkvennahópnum Djamm Original sem hélt sína árlegu árshátíð í Vestmannaeyjum í gær. Um er að ræða tvo vinahópa, úr árgöngunum 1998 og 1999, sem hafa haldið þennan skemmtilega sið frá árinu 2018. Dagskráin var fjölbreytt og greinilegt að metnaður hafði verið lagður í daginn. Gleðin hófst heima hjá Bylgju […]
Tvöfaldur leikdagur hjá ÍBV

Bæði meistaraflokkslið ÍBV verða í eldlínunni í Bestu deildunum í dag. Karlaliðið tekur á móti KA á Hásteinsvelli klukkan 14.00 en tveimur tímum síðar hefja Eyjakonur leik gegn Þór/KA á VÍS-vellinum á Akureyri. Mikilvæg stig í boði á Hásteinsvelli Það er mikið undir þegar ÍBV og KA mætast á Hásteinsvelli. Eyjamenn eru í áttunda sæti […]