ÍBV tók á móti KA í 15. umferð Bestu deildar karla á Hásteinsvelli í dag en liðið skildu jöfn 2-2 í miklum baráttuleik.
Eyjamenn komu af krafti inn í leikinn og voru mun öflugri í fyrri hálfleik. Omar Sowe komst nálægt því að koma ÍBV yfir eftir tæplega 20 mínútur þegar hann átti skot í þverslánna. Það voru hins vegar KA menn sem leiddu í hálfleik með marki frá André Rømer, algjörlega gegn gangi leiksins. Rømer átti þá skot fyrir utan teig sem fór í stöngina og inn. Vicente Valor komst nálægt því að jafna fyrir Eyjamenn undir lok fyrri hálfleik en skot hans fór í stöngina. Staðan 0-1 í hálfleik.
Omar Sowe jafnaði fyrir ÍBV í síðari hálfleik þegar rúmar 20 mínútur voru til leiksloka. Hann slapp þá einn í gegn eftir sendingu frá Felix Erni Friðrikssyni, fór fram hjá Ívari Arnbro Þórhallssyni, markverði KA, og skoraði í autt markið. Fimm mínútum síðar komust KA menn aftur yfir þegar Birgir Baldvinsson skoraði með skalla, eftir hornspyrnu Hallgríms Mar Steingrímssonar. Á 77. mínútu leiksins dró til tíðinda þegar Omar Sowe fékk að líta rauða spjaldið eftir stimpingar inn á teig KA manna. Eyjamenn því einum færri síðustu mínútur leiksins.
Eyjamenn reyndu að sækja jöfnunarmark og uppskáru vítaspyrnu þegar fimm mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma. Fyrirliði KA, Hans Viktor Guðmundsson, tók þá Eið Atla Rúnarsson niður inn á teig. Vicente Valor fór á vítapunktinn og skoraði örugglega. KA menn sóttu nokkuð stíft á Eyjamenn síðustu mínúturnar í leit að sigurmarki en það tókst ekki. Lokatölur leiksins 2-2 og liðin skipta með sér stigunum.
Eyjamenn eru eftir 15 umferðir með 16 stig í sjötta sæti. KA menn sitja í tíunda sæti með 14 stig.
ÍBV 2 – 2 KA
0-1 André Rømer (’36 )
1-1 Omar Sowe (’68 )
1-2 Birgir Baldvinsson (’73 )
2-2 Vicente Rafael Valor Martínez (’85 , víti)
Rautt spjald: Omar Sowe, ÍBV (’77)
Staðan í Bestu deild karla:
Víkingur R. – 40 stig
KR – 35 stig
Fram – 35 stig
Breiðablik – 25 stig
Valur – 19 stig
ÍBV – 16 stig
Keflavík – 16 stig
Stjarnan – 15 stig
ÍA – 15 stig
KA – 14 stig
FH – 11 stig
Þór – 11 stig