Tvöfaldur leikdagur hjá ÍBV
Karlarnir fá KA í heimsókn – konurnar sækja Þór/KA heim
Bæði meistaraflokkslið ÍBV verða í eldlínunni í Bestu deildunum í dag. Karlarnir taka á móti KA á Hásteinsvelli en konurnar sækja Þór/KA heim fyrir norðan. Ljósmyndir/Sigfús G. Guðmundsson.

Bæði meistaraflokkslið ÍBV verða í eldlínunni í Bestu deildunum í dag. Karlaliðið tekur á móti KA á Hásteinsvelli klukkan 14.00 en tveimur tímum síðar hefja Eyjakonur leik gegn Þór/KA á VÍS-vellinum á Akureyri.

Mikilvæg stig í boði á Hásteinsvelli

Það er mikið undir þegar ÍBV og KA mætast á Hásteinsvelli. Eyjamenn eru í áttunda sæti Bestu deildarinnar með 15 stig eftir 14 leiki, jafnir Stjörnunni og ÍA að stigum. KA er í tíunda sæti með 13 stig.

Baráttan í neðri hluta deildarinnar harðnaði enn frekar í gær þegar Þór lagði topplið Víkings að velli, 2:1. Aðeins fimm stig skilja nú Keflavík í sjötta sæti og Þór á botninum. FH og Þór eru bæði með 11 stig, tveimur stigum á eftir KA og fjórum á eftir ÍBV.

Sigur í dag myndi því færa Eyjamönnum fimm stiga forskot á KA og sjö stiga forskot á botnliðin. KA færi hins vegar upp fyrir ÍBV með sigri á Hásteinsvelli.

Þetta sýnir betur hversu þétt staðan er og hversu miklu leikurinn skiptir fyrir bæði lið.

Eyjakonur geta styrkt stöðu sína

Kvennalið ÍBV sækir Þór/KA heim á Akureyri klukkan 16.00. Eyjakonur eru í fjórða sæti Bestu deildarinnar með 20 stig eftir 11 leiki, aðeins einu stigi á eftir Stjörnunni í þriðja sæti.

ÍBV hefur unnið tvo síðustu leiki sína. Fyrst lagði liðið Víking Reykjavík að velli, 3:1, og fylgdi því eftir með góðum 2:1-sigri á Val á Hásteinsvelli á miðvikudag. Fridrikka Marie Clementsen og Allison Grace Lowrey skoruðu mörk ÍBV í þeim leik.

Þór/KA situr á botni deildarinnar með níu stig en aðeins eitt stig skilur liðið frá Val, Víkingi og Fram. Akureyringar þurfa því nauðsynlega á stigum að halda og má búast við hörðum leik fyrir norðan.

Með sigri geta Eyjakonur styrkt stöðu sína enn frekar í efri hluta deildarinnar og haldið pressunni á liðunum þremur sem sitja fyrir ofan þær.

Leikur Þórs/KA og ÍBV hefst klukkan 16.00 á VÍS-vellinum.

Nýjustu fréttir

Djamm Original heldur í hefðirnar  – Frá Bridgerton í aldamótastuð
Tvöfaldur leikdagur hjá ÍBV
Guðný Geirsdóttir – Íþróttamaður mánaðarins
Vestmannaeyjar í lykilhlutverki á 100 ára afmæli Landhelgisæslunnar
Þjónustuþegum í lengdri viðveru fjölgar um helming
Frá gamla hrauninu að framkvæmdum við Íþróttamiðstöðina
Stuðningsmaður KFS vinnur 700 þúsund
Vestmannaeyja-Þór ruddi brautina fyrir Landhelgisgæslu Íslands
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.