Laxey boðar til samráðs- og upplýsingafundar
Seiðaeldisstöð Laxeyjar í botni Friðarhafnar. Fyrirtækið áformar að reisa aðra seiðaeldisstöð í Viðlagafjöru. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Laxey boðar íbúa Vestmannaeyja og aðra áhugasama til samráðs- og upplýsingafundar næstkomandi þriðjudag. Þar verður meðal annars farið yfir stöðu uppbyggingar fyrirtækisins, umhverfis- og sjálfbærnimál, fiskheilbrigði og áhrif starfseminnar á samfélagið.

Fundurinn verður haldinn í seiðastöð Laxey að Strandvegi 104 þriðjudaginn 21. júlí klukkan 17.00.

Í tilkynningu á vef Laxey kemur fram að íbúum Vestmannaeyja, hagsmunaaðilum, félagasamtökum, opinberum aðilum og öðrum áhugasömum sé boðið til fundarins. Hann sé liður í samráði fyrirtækisins við nærsamfélagið og hagsmunaaðila, í samræmi við kröfur ASC-vottunar.

Á fundinum verður fjallað um:

  • starfsemi Laxey og stöðu uppbyggingar,
  • umhverfis- og sjálfbærnimál,
  • fiskheilbrigði og fiskvelferð,
  • meðferð fiska, þar á meðal notkun lyfja og annarra meðferða þegar þeirra er þörf,
  • áhrif starfseminnar á samfélagið.

Jafnframt verður skapaður vettvangur fyrir opið samtal þar sem fundargestir geta komið spurningum, ábendingum og athugasemdum á framfæri.

Allir eru velkomnir á fundinn.

Nýjustu fréttir

Þetta er mögnuð íþrótt sem allir geta spilað
Bærinn ósammála ráðuneytinu í þremur uppsagnarmálum
Bleikt boð hjá Krabbavörn Vestmannaeyja
Smári Jökull hjá Sýn 
Sjálfkeyrandi bílar í Eyjum? Ráðherra tekur jákvætt í hugmyndina
Ítalía mun alltaf eiga sérstakan stað í hjartanu
Vestmannaeyjabær óskar eftir niðurstöðum úr PISA
Sæðisprufan hans Sigurgeirs vakti mikla kátínu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.