Djamm Original heldur í hefðirnar  – Frá Bridgerton í aldamótastuð
Tveir vinahópar í Vestmannaeyjum hafa haldið sameiginlega árshátíð frá árinu 2018 – Dagurinn hófst í fínu teboði en endaði í sannkölluðu aldamótadjammi
Glæsilegar. Eins og klipptar út úr Bridgerton þátunum vinsælu.

Það var mikið um dýrðir hjá vinkvennahópnum Djamm Original sem hélt sína árlegu árshátíð í Vestmannaeyjum í gær. Um er að ræða tvo vinahópa, úr árgöngunum 1998 og 1999, sem hafa haldið þennan skemmtilega sið frá árinu 2018.

Dagskráin var fjölbreytt og greinilegt að metnaður hafði verið lagður í daginn. Gleðin hófst heima hjá Bylgju og Óskari þar sem boðið var til „teboðs“ með mat og drykkjum í anda Bridgerton-þáttanna. Að því loknu var skipt um gír og hópurinn hélt af stað í rútu sem ók með þær hring um Heimaey.

Ferðalaginu var þó hvergi nærri lokið því næst lá leiðin út á sjó. Þar tók við um hálftíma sigling í kringum Eyjuna og sá Jarl um tónlistina og hélt uppi fjörinu um borð. Eftir siglinguna var haldið í Zame króna þar sem Bridgerton-tímabilið fékk að víkja fyrir aldamótaárunum og hópurinn skipti yfir í 2000-þema. Þaðan var töltið tekið á Vöruhúsið þar sem pizzur og drykkir biðu hópsins.

Að lokum var aftur haldið í Zame og þar var punkturinn settur yfir i-ið á enn einni árshátíð Djamm Original. Miðað við hefðina undanfarin ár er fátt sem bendir til annars en að hópurinn haldi áfram að gera sér glaðan dag saman um ókomin ár. Daddi Diskó var kynnir á dagskránni sem var mjög fjölbreytt. Myndbönd og stuð,  Hákon Tristan og Andri sungu nokkur lög og Egill Spegill þeytti skífur fram á  nótt.

Í Djamm Original eru Viktoría Ágústa Hjaltadóttir, Hrafnhildur Sigmarsdóttir, Hrafnhildur Stefánsdóttir, Margrét Íris Einarsdóttir, Birgitta Dögg Óskarsdóttir, Sigríður Viktorsdóttir, Kristín Ingólfsdóttir, Sigríður Sæland Óðinsdóttir, Svala Björk Hólmgeirsdóttir, Gígja Sunneva Bjarnadóttir, Berglind Sigmarsdóttir, Sirrý Rúnarsdóttir, Sóldís Eva Gylfadóttir, Inga Hanna Bergsdóttir, Jóhanna Rós Hansdóttir, Margrét Björk Grétarsdóttir og Þórdís Eva Þórsdóttir.

 

„Svo fór ég með megahressum drottningum í partýferð í kring um Bjarnarey,“ segir Jarl Sigurgeirsson á FB-síðu sinni og þótti standa sig mjög vel.

 

Klæddar eins og mömmurnar um aldamótin síðustu.

 

Nýjustu fréttir

Eyjakonur töpuðu gegn Þór/KA á Akureyri
ÍBV og KA skildu jöfn á Hásteinsvelli
Laxey boðar til samráðs- og upplýsingafundar
Djamm Original heldur í hefðirnar  – Frá Bridgerton í aldamótastuð
Tvöfaldur leikdagur hjá ÍBV
Guðný Geirsdóttir – Íþróttamaður mánaðarins
Vestmannaeyjar í lykilhlutverki á 100 ára afmæli Landhelgisæslunnar
Þjónustuþegum í lengdri viðveru fjölgar um helming
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.