Lögregla hættir rannsókn á andlátsmálinu á Hraunbúðum
Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS
TMS M Frett 26 (2)
Tryggvi Már
Sæmundsson

Lögreglan á Suðurlandi hefur hætt rannsókn á andláti á Hraunbúðum í Vestmannaeyjum. Ákvörðunin var tekin í dag eftir að endanleg krufningsskýrsla barst lögreglu fyrir helgi og farið hafði verið yfir hana.

Þetta staðfestir Rúnar Þór Steingrímsson, lögreglufulltrúi hjá lögreglunni á Suðurlandi, í svari við fyrirspurn Eyjafrétta.

„Lögreglan á Suðurlandi hætti í dag rannsókn á andlátsmálinu á Hraunbúðum í Vestmannaeyjum. Eftir að lögreglu barst endanleg krufningsskýrsla nú fyrir helgi var farið yfir hana. Niðurstaðan var að ekki er grundvöllur til að halda rannsókn áfram,“ segir Rúnar Þór.

Sakborningar í málinu og verjendur þeirra hafa verið upplýstir um ákvörðunina og þeim send bréf þess efnis. Þá hefur réttargæslumaður fjölskyldu hins látna verið upplýstur og komið upplýsingunum áleiðis til aðstandenda.

Kærufrestur vegna ákvörðunarinnar er ekki liðinn og segir lögregla því ekki unnt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu, umfram þær upplýsingar sem þegar hafa verið veittar á fyrri stigum.

Lögreglan á Suðurlandi hóf rannsókn á málinu í kjölfar andláts á Hraunbúðum í Vestmannaeyjum þann 28. janúar síðastliðinn. Í tengslum við rannsóknina var farið fram á gæsluvarðhald en Héraðsdómur Suðurlands hafnaði þeirri kröfu. Lögreglustjórinn á Suðurlandi kærði úrskurðinn til Landsréttar.

Landsréttur komst að þeirri niðurstöðu að með tilliti til skýrslutaka og annarra rannsóknaraðgerða sem farið höfðu fram væru ekki lengur fyrir hendi rannsóknarhagsmunir sem styddu gæsluvarðhald.

Þessu tengt: Landsréttur hafnaði kröfu um gæsluvarðhald

Nýjustu fréttir

Sara Dröfn snýr heim í ÍBV
Styrkleikarnir fóru fram í annað sinn
Evrópuhreyfingin: 105.339 Íslendingar sögðu já
Þjóðin hafnar því að hefja aðildarviðræður við ESB að nýju
Tæknin getur einfaldað námið til muna – fyrirlestur fyrir foreldra í Höllinni
Frábær sigur ÍBV á útivelli gegn Breiðablik
ÍBV í fallsæti eftir tap á heimavelli gegn Þór
Þór bjargaði fólki úr sjálfheldu í Reynisfjöru
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.