Landsréttur hafnaði kröfu um gæsluvarðhald
Hraunb IMG 3125 2
Dvalar- og hjúkrunarheimilið Hraunbúðir. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Suðurlands um að hafna kröfu lögreglustjórans á Suðurlandi um gæsluvarðhald yfir tveimur einstaklingum í tengslum við rannsókn á andláti á hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum. Lögreglustjóri kærði úrskurðinn til Landsréttar sem hefur nú komist að þeirri niðurstöðu að skilyrði gæsluvarðhalds séu ekki lengur fyrir hendi.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi. Þar segir að skýrslutökur og aðrar rannsóknaraðgerðir hafi farið fram undanfarna daga og með hliðsjón af framvindu rannsóknarinnar telji Landsréttur að rannsóknarhagsmunir réttlæti ekki gæsluvarðhald í málinu.

Tilkynning í heild sinni:

Héraðsdómur Suðurlands hafnaði á þriðjudag kröfu lögreglustjórans á Suðurlandi um gæsluvarðhald til föstudags vegna máls er varðar andlát í Vestmannaeyjum. Lögreglustjóri kærði úrskurð héraðsdóms til Landsréttar. Skýrslutökur og rannsóknaraðgerðir hafa farið fram undanfarna daga og niðurstaða Landsréttar í dag er á þá leið að m.a. með tilliti til þess séu ekki lengur fyrir hendi rannsóknarhagsmunir sem styðja gæsluvarðhald.

Nýjustu fréttir

Hermundur hugmyndasmiður Kveikjum neistann 
99 á atvinnuleysisskrá í Eyjum – árstíðasveiflur skýra haustaukningu
Ómetanlegt að sjá heilt samfélag taka höndum saman
Radarhýsið komið á sinn stað á Stórhöfða
Fjölbreytt fjögurra daga menningarveisla
Vikan í Eyjum: Fjármál bæjarins, brons og besta lundasumarið
„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.