
Jónína Einarsdóttir fagnaði hundrað ára afmæli á Hraunbúðum, Eyjafréttir rýndu í kostnað við salernin á Vigtartorgi og bæjaryfirvöld höfnuðu samantekt úr opnu bókhaldi. Á laugardag var líf og fjör á markaðnum í Höllinni og Eyjakonur náðu jafntefli gegn toppliði Hauka.
Jónína Einarsdóttir fagnaði hundrað ára afmæli sínu á Hraunbúðum á föstudag. Hún er kennd við Götu og síðar Nýborg, þar sem hún bjó í 46 ár. Í Fiskiðjunni, þar sem hún starfaði um árabil, var hún kölluð Jónína á tíu. Óskar Pétur Friðriksson tók myndir í afmælinu. Lesa um Jónínu · Sjá myndir úr afmælinu
Í nóvemberblaði Eyjafrétta fórum við yfir kostnað við salernisframkvæmdir á Vigtartorgi og hvernig leyfisferlinu var háttað. Framkvæmdin kostaði rúmlega 40 milljónir króna og hélt áfram án byggingarleyfis. Lesa um salernisframkvæmdirnar á Vigtartorgi
Við tókum einnig saman bókaðar færslur til lögfræðiþjónustuveitenda úr opnu bókhaldi Vestmannaeyjabæjar. Þegar staðan var könnuð 12. nóvember námu færslur ársins til þeirra aðila sem samantektin náði til að minnsta kosti 37,1 milljón króna. Þar af voru 30,5 milljónir bókaðar á AX Lögmannsþjónustu. Bæjaryfirvöld höfnuðu því að samantektin væri rétt. Í svörum þeirra kom hvorki fram hvaða færslur þau gerðu athugasemdir við né hvaða fjárhæðir þau töldu réttar. Tölurnar geta breyst við yfirferð og leiðréttingar. Lesa um samantektina og svör bæjarins
Fræðsluráð Vestmannaeyja samþykkti dagsetningar sumarlokunar leikskólanna fyrir árin 2027 og 2028. Sjá dagsetningar sumarlokana
Endurvinnslan tilkynnti að ÍBV tæki við móttöku á dósum og flöskum af Heimaey, vinnu- og hæfingarstöð, í febrúar 2027. Nánari upplýsingar um staðsetningu og opnunartíma verða kynntar síðar. ÍBV tekur við dósamóttökunni
Nóvemberblað Eyjafrétta kom út á fimmtudag. Þar segir norski læknirinn Mads Aanesen frá því hvernig fjölskyldan fluttist til Eyja og Áslaug Dís Bergsdóttir læknir frá því að snúa heim eftir tæpa tvo áratugi á höfuðborgarsvæðinu. Í blaðinu er einnig fréttaskýring um útboð heilsuræktar við Íþróttamiðstöðina. Nóvemberblað Eyjafrétta komið út
Kvenfélagið Líkn færði sjúkradeild HSU í Vestmannaeyjum eyrnaskoðunartæki og sprautudælu. Að sögn starfsfólks deildarinnar eykur dælan öryggi við nákvæma lyfjagjöf, meðal annars þegar krabbameinslyf eru gefin. Líkn færir sjúkradeildinni tvö ný tæki
Á föstudag var undirritaður nýr kjarasamningur fyrir sjómenn á smábátum, sá fyrsti frá árinu 2012. Fyrr í vikunni fjölluðum við um afstöðu Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi til kolefnisgjalds á eldsneyti fiskiskipa. Samtökin vilja að gjaldið verði afnumið eða lækkað verulega á meðan raunhæfir kostir til orkuskipta eru ekki fyrir hendi. Gjaldið á gas- og dísilolíu hefur hækkað úr 13,45 krónum á lítra árið 2024 í 28,30 krónur í ár. Kjarasamningur sjómanna á smábátum · Umfjöllun um kolefnisgjaldið
Það var góð stemning og mikill gestagangur á handverks- og vörumarkaðnum í Höllinni á laugardag. Óskar Pétur Friðriksson og Halldór B. Halldórsson tóku myndir af gestum, sölufólki og því sem var á boðstólum. Halldór tók einnig myndband. Myndir og myndband frá markaðnum
Eyjakonur skoruðu tvö síðustu mörkin gegn toppliði Hauka á Ásvöllum á laugardag og náðu 31–31 jafntefli. Andrea Jacobsen skoraði tíu mörk og ÍBV fór upp í annað sæti Olísdeildarinnar. Karlalið ÍBV tapaði 34–27 fyrir Aftureldingu í Mosfellsbæ á fimmtudag. Jafntefli gegn Haukum · Leikurinn gegn Aftureldingu
Í vikunni fjölluðum við um að listi yfir umsækjendur um starf slökkviliðsstjóra í Vestmannaeyjum væri enn ókominn. Við fylgjum málinu eftir í vikunni fram undan og vonumst til að fá svör frá Vestmannaeyjabæ um hverjir sóttu um starfið. Listi yfir umsækjendur um starf slökkviliðsstjóra enn ókominn
Tryggvi Már Sæmundsson
Ritstjóri Eyjafrétta