Emil Gautason á skotskónum fyrir u-16 ára landslið Íslands
Emil Gautason.

Eyjamaðurinn Emil Gautason og félagar hans í U-16 landslið Íslands í fótbolta léku þriðja og síðasta leik sinn á UEFA Development mótinu, gegn Írlandi í dag. Staðan var 3-3 eftir venjulegan leiktíma og fór þá fram vítaspyrnukeppni þar sem íslenska liðið tapaði, 5-4. 

Emil sem er leikmaður ÍBV, kom inn á 60. mínútu leiksins í stöðunni 2-0 fyrir Írum. Hann jafnaði leikinn fjórum mínútum fyrir leikslok í 3-3. Hann skoraði einnig úr sinni spyrnu í vítakeppninni. Bjarki Hrafn Garðarsson, leikmaður Stjörnunnar, gerði fyrstu tvö mörk Íslands í leiknum.

Liðið spilaði þrjá leiki á mótinu og kom Emil inn á í tveimur þeirra og var í byrjunarliðinu í einum. Liðið gerði jafntefli við Írland og Finnlands og tapaði gegn Lettlandi.

Nýjustu fréttir

Metmæting á kótilettukvöldi í Höllinni
Aron Lucas Vokes með slitið krossband
Agnar Smári Jónsson með stórsýningu er hann sneri aftur á völlinn í Eyjum í dag
Sandra tryggði ÍBV sigur í blálokin gegn Fram
Bleikur leikur hjá Eyjakonum – allur aðgangseyrir til Krabbavarnar
Gul viðvörun á Suðurlandi – hviður geta farið yfir 30 m/s
Arnór maður leiksins í sigri Karlskrona
Sálmastund með þér
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.