Víkin heimsótti Vinnslustöðina
Að sjálfsögðu var tekin hópmynd í heimsókninni. Ljósmynd/vsv.is

Börnin á Víkinni, 5 ára deild, heimsóttu Vinnslustöðina í vikunni og vakti heimsóknin mikla lukku hjá hópnum.

„Þau voru mjög spennt að koma og fannst sérstaklega gaman að klæðast öllum hlífðarfatnaðinum frá toppi til táar,“ segir Helena Björk Þorsteinsdóttir í samtali við vefsíðu Vinnslustöðvarinnar, en hún tók á móti hópnum. „Sum þeirra voru svo ánægð með hárnetin að þau héldu þeim á sér allan daginn.“

Í heimsókninni fengu börnin að skoða starfsemina og kynnast sjávarafurðum af eigin raun. Þau sem þorðu og vildu fengu að snerta meðal annars þorsk, ufsa, spærling og humar.

„Það var mjög gaman að sjá hvað þau voru áhugasöm og óhrædd við að prófa eitthvað nýtt,“ segir Helena Björk.

Að lokinni heimsókn fengu börnin svo lítinn nammipoka með sér heim, sem vakti mikla ánægju. Áhrif heimsóknarinnar lét svo ekki á sér standa þegar komið var aftur í skólann.

„Þegar þau komu til baka fóru nokkrir drengir strax í Dubló-kubbana og byrjuðu að byggja skip og frystihús og voru að flytja fiskana inn. Það var hrikalega skemmtilegt að sjá hvað heimsóknin lifði áfram í leiknum hjá þeim,“ segir Helena Björk. Að hennar sögn tókst heimsóknin afar vel og börnin voru til fyrirmyndar allan tímann.

Fleiri myndir frá heimsókninni má sjá hér.

Nýjustu fréttir

Tap hjá ÍBV gegn Stjörnunni
Hoppukastalar, pylsur og Arsenal-stemning í Höllinni
Hjónin Rósa og Ágúst deila áhuga á handverki
Eyjakonur sækja Stjörnuna heim í mikilvægum leik
45 nemendur útskrifuðust frá FÍV
Eldri hjón deila 336 milljónum með börnum og barnabörnum
Hipsumhaps á Þjóðhátíð
Stuttir túrar skiluðu góðum afla
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.