Rúmlega hundrað konur á Mey kvennaráðstefnu
Andrea, Íris, Erna og Sara Sjöfn létu sig ekki vanta á Mey.

Mey kvennaráðstefnan fór fram í Sagnheimum síðastliðinn laugardag við góðar undirtektir. En rúmlega hundrað konur komu saman og nutu dagsins í góðum félagsskap. Markmið Mey er að sameina konur, styrkja, gleðja og valdefla og er þetta í þriðja sinn sem ráðstefnan er haldin. Dagskráin var að vanda fjölbreytt og skemmtileg, en þrír fyrirlesarar stigu á svið yfir daginn.

Fyrst á svið var uppistandarinn Birna Rún Eiríksdóttir sem vakti mikla lukku meðal gesta með léttu og skemmtilegu peppi. Þá bauð Lilja Birgisdóttir upp á ilmupplifun frá Fischersund sem skapaði einstaka stemningu í salnum. Í lokinn kom Jónsi úr Svörtum fötum fram og tók lagið.

Að lokinni dagskrá í Sagnheimum hélt hópurinn upp í Eldheima þar sem boðið var upp á mat og drykk frá Vöruhúsinu.

Dagurinn var einstaklega vel heppnaður og var mikið hlegið.

Myndir: Katla Arnarsdóttir.

Nýjustu fréttir

Einstæð móðir vann rúmar 45 milljónir í Lottó
Bókakynningu Steinunnar frestað til sunnudags
Kæru vegna útboðs heilsuræktar hafnað – skilmálarnir ekki metnir efnislega
Loðnan ofarlega á baugi hjá kaupendum í Asíu
Arnar tilkynnti lokahóp Íslands – Þrjár Eyjakonur á leið á EM
Jarðvinna og húsbyggingar í Eyjum
Tíundubekkingar standa vaktina í skammdeginu
Nýtt fyrirkomulag á hrekkjavökunni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.