Dýpkun gekk ágætlega í gærkvöldi
Vinna heldur áfram í dag við ásættanlegar aðstæður
Landeyjahöfn hefur verið lokuð vegna grynninga undanfarnar vikur. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Dýpkun í Landeyjahöfn gekk ágætlega í gærkvöldi og hafa aðstæður leyft áframhaldandi vinnu í morgun. Þetta kemur fram í upplýsingum frá G. Pétri Matthíassyni, forstöðumanni samskiptadeildar Vegagerðarinnar.

„Dýpkun gekk ágætlega í gærkvöldi. Hún hófst aftur klukkan 08:00 í morgun og útlit er fyrir að aðstæður verði áfram ásættanlegar á þessu flóði,“ segir Pétur.

Eftir erfiða daga virðist sem loks hafi skapast betri gluggi til dýpkunar, þar sem sjólag er hagstæðara en áður. Dýpkunarframkvæmdir hafa undanfarið verið mjög háðar ölduhæð og aðstæðum í hafnarmynninu, en jafnvel stuttir gluggar geta skipt miklu máli fyrir framgang verksins. Ekki þarf að fjölyrða um mikilvægi þess að Landeyjahöfn opni fyrir áætlunarsiglingar Herjólfs sem fyrst, enda fyrsti dagur sumars á morgun.

Nýjustu fréttir

Breyta hlutverki æskulýðs- og tómstundafulltrúa
Æfðu hífingar milli björgunarbáts og þyrlu
Eyjakonur áfram á sigurbraut – Unnu Val á Hásteinsvelli
Tyrkjaránsganga Sögusetursins 1627
Einn túr eftir fyrir sumarstopp
NovaFest á Vöruhúsinu á Þjóðhátíð
ÍBV tekur á móti Val í kvöld
Rafmótorinn tilbúinn – Herjólfur úr áætlun í allt að fjóra sólarhringa
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.