Baráttan um atkvæði Eyjamanna er komin á fulla ferð eftir að þrír stjórnmálaflokkar tilkynntu framboð til kjörstjórnar. Sjálfstæðisflokkurinn er þar á meðal og markmiðið okkar sjálfstæðismanna er bara eitt: Að vinna meirihluta í kosningunum 16.maí.
Ný vatnslögn
Ég hef starfað í bæjarstjórn sl. 4 ár, sem oddviti Sjálfstæðismanna , og hef setið í Bæjarráði, þar sem hagsmunagæslan er mest krefjandi. Fyrir fjórum árum settum við Sjálfstæðismenn fram sem okkar baráttumál að leggja nýja vatnslögn milli lands og Eyja. Ekki óraði mig fyrir að það einstaka mál yrði eins fyrirferðarmikið eins og kom á daginn.
Ég hef starfað í svokölluðum vatnshóp, sem myndaður var í byrjun kjörtímabilsins og það er gleðiefni að gengið hefur verið frá kaupum og lagningu nýrrar vatnslagnar á komandi sumri. Algjör samstaða var um þetta verkefni hjá öllum í bæjarstjórn og það er örugglega lykillinn að því að þetta mál er komið á þennan stað.
Vatnslögnin er almannavarnamál
Bæjarráð hefur fylgt því fast á eftir, við ríkið, að um 3ja milljarða kostnaður við vatnslögnina verði viðurkenndur sem almannavarnamál. Verði það viðurkennt mun kostnaðurinn við lögnina verða greiddur af ríkinu. Ríkið hefur nú þegar samþykkt 800 milljónir til verkefnisins og var það samþykkt af síðustu ríkisstjórn 2023.
Með ríkisstjórnarskiptum á síðasta ári má segja að fjármögnunarverkefnið hafi þurft að hefjast uppá nýtt með nýjum ráðherrum og þess vegna dregist á langinn. Það er von okkar sem höfum fylgt þessu verkefni eftir undanfarin ár, að það sé raunhæft markmið að ríkið viðurkenni verkefnið sem almannavarnarmál. Sú vinna sem hefur verið unnin til þess að sá árangur náist er mikil og ég tel mikilvægt að fólk með þekkingu og reynslu fylgi því máli eftir áfram. Ég fullyrði að þetta er eitt stærsta hagsmunamál íbúa í Vestmannaeyjum í mjög langan tíma.
Orkuskiptin – Nýir sæstrengir
Á stefnuskrá okkar Sjálfstæðismanna í síðustu kosningum var baráttan fyrir nýjum sæstreng milli lands og Eyja. Á þeim tíma var einn strengur komin á framkvæmdaáætlun Landsnets, en ekkert í hendi að framkvæmdin væri tryggð. Strax var hafist handa við að knýja á framgang verkefnisins í ljósi þess að atvinnulífið í Vestmannaeyjum gat ekki farið í orkuskiptin nema flutningsgeta raforku til Eyja yrði bætt.
Það voru því ánægjulegar fréttir þegar Landsnet tilkynnti ákvörðun um lagningu tveggja sæstrengja. Aðkoma Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, þáverandi ráðherra Sjálfstæðisflokksins, hafði mikil áhrif á góða niðurstöðu þessa máls. Sæstrengirnir voru lagðir sumarið 2025 og eru komnir í gagnið í dag.
Sjálfstæðisflokkurinn er traustsins verður
Þessi stutta samantekt sýnir að bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins berjast alltaf fyrir hagsmunum Eyjamanna. Það gerðum við svo sannarlega sl. kjörtímabil , þótt við værum í minnihluta. Gott samstarf hefur skilað okkur trausti og því berum við vonir í brjóstum okkar og höfum góða tilfinningu fyrir góðum árangri í komandi sveitarstjórnarkosningum.
Áfram Vestmannaeyjar
Eyþór Harðarson, bæjarfulltrúi og oddviti framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Vm.