Fyrstu borsýni komin upp úr jörðu
Magnús Gíslason með borsýnið. Ljósmynd/Eyjagöng.is

Fyrstu sýni úr kjarnaboruninni í Vestmannaeyjum komu upp úr holunni eftir hádegi á mánudaginn síðastliðinn.

Í upphafi var holan fóðruð niður á um 15 metra dýpi og er fyrsta borsýnið því tekið þaðan. Með þessu er hafinn sá hluti rannsóknarinnar sem felst í að greina eiginleika jarðlaganna með beinum sýnatökum, segir í frétt á vefnum Eyjagöng.is.

Þar segir jafnframt að í framhaldinu yrði farið í lektarprófanir. Eftirlit með framkvæmdinni er í höndum Benedikts Óskars Steingrímssonar fyrir hönd Völubergs, en allar aðgerðir á verkstað fara í gegnum hann. Fyrirtækin Völuberg og Efla sjá sameiginlega um stjórn og ráðgjöf við rannsóknina fyrir hönd Eyjaganga.

Ræktunarsamband Flóa og Skeiða annast framkvæmd borunarinnar og leggur til bæði búnað og sérhæft starfsfólk. Á meðfylgjandi mynd sést hinn þaulreyndi borstjóri, Magnús Gíslason, halda á fyrsta borsýninu.

Nýjustu fréttir

Vatnslögnin er stærsta hagsmunamál íbúa í Eyjum 
Fyrstu borsýni komin upp úr jörðu
Dýpkun gekk ágætlega í gærkvöldi
Öflugur rekstur lykilatriði
Rúmlega hundrað konur á Mey kvennaráðstefnu
Spurt og svarað: Kjartan Vídó frá Sjálfstæðisflokknum.
“Selfies” eru ekki hagsmunagæsla
ÍBV – Haukar: Einvígið heldur áfram
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.