ÍBV – Haukar: Einvígið heldur áfram
Ljósmynd/Sigfús G. Guðmundsson

ÍBV og Haukar mætast í kvöld í þriðja leik liðanna í undanúrslitum Olís-deildar kvenna í handbolta. Staðan í einvíginu er jöfn, 1–1, og því ljóst að mikið er undir þegar flautað verður til leiks í Íþróttamiðstöðinni klukkan 18:30.

Eyjakonur fara inn í leikinn fullar sjálfstrausts eftir sterkan sigur í síðasta leik liðanna, þar sem þær sýndu mikinn karakter og komu til baka eftir að hafa verið undir. Leikurinn endaði með eins marks sigri ÍBV, 28–29, eftir æsispennandi lokamínútur.

Sá sigur jafnaði einvígið og tryggði að allt er opið fyrir kvöldið, þar sem sigurvegari kemst skrefi nær sæti í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn.

Kalla eftir öflugum stuðningi

Í tilkynningu frá handknattleiksdeild ÍBV er stuðningsfólk hvatt til að mæta og skapa öfluga stemningu: Baráttan heldur áfram og spennan eykst með hverjum leik. Staðan er 1–1 og stefnan er sett á heimasigur.

Upphitun hefst klukkan 17:30, klukkutíma fyrir leik.

Nýjustu fréttir

Klara Káradóttir framlengir við ÍBV
Breyta hlutverki æskulýðs- og tómstundafulltrúa
Æfðu hífingar milli björgunarbáts og þyrlu
Eyjakonur áfram á sigurbraut – Unnu Val á Hásteinsvelli
Tyrkjaránsganga Sögusetursins 1627
Einn túr eftir fyrir sumarstopp
NovaFest á Vöruhúsinu á Þjóðhátíð
ÍBV tekur á móti Val í kvöld
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.