Undirstaða góðs rekstrar er ábyrg fjármálastjórn, skýr og markviss forgangsröðun ásamt öflugu eftirliti með tekjum og útgjöldum. Markvisst hefur verið unnið að þessum þáttum hjá Vestmannaeyjabæ og hefur það skilað sér í jákvæðum rekstri og skuldlausum sveitarsjóði. Í því efnahagsumhverfi sem nú ríkir, þar sem bæði vextir og verðbólga eru há, skiptir miklu máli að þurfa ekki að verja sameiginlegu fé bæjarbúa í vaxtakostnað. Jákvæð rekstrarniðurstaða er lykilforsenda áframhaldandi uppbyggingar innviða og þess að íbúum sé tryggð traust og góð þjónusta.
Ólíkt fyrirtækjum er hlutverk sveitarfélags ekki að hámarka hagnað, heldur að veita lögbundna og mikilvæga samfélagslega þjónustu. Hins vegar er jákvæður rekstrarafgangur nauðsynlegur til að sveitarfélag geti staðið undir fjárfestingum, mætt ófyrirséðum útgjöldum og lágmarkað fjárhagslega áhættu. Vestmannaeyjabær er skuldlaust sveitarfélag, sem styrkir enn frekar rekstrarstöðu sveitarfélagsins og eykur svigrúm til framtíðar fjárfestinga. Afgangur upp á hundruð milljóna króna skapar þannig möguleika á að bregðast við efnahagslegum sveiflum án þess að skerða þjónustu eða hækka álögur á íbúa.
Stór hluti útgjalda Vestmannaeyjabæjar fer í grunnþjónustu á borð við fræðslumál, félagsþjónustu, þjónustu við eldri borgara og málefni fatlaðs fólks. Til þess að geta veitt góða þjónustu á þessum sviðum þarf fjárhagslegt bolmagn. Jákvæður rekstur gerir bænum kleift að bæta aðstöðu, efla mannauð og þróa þjónustu áfram í takt við auknar kröfur íbúa. Á yfirstandandi kjörtímabili hefur meðal annars verið bætt við 60 leikskólaplássum, aðgerð sem hefði ekki verið raunhæf nema vegna góðrar rekstrarstöðu sveitarfélagsins.
Afgangur í rekstri er einnig lykilforsenda fyrir uppbyggingu innviða, svo sem skólahúsnæðis, íþróttamannvirkja, hafnar og gatnakerfis. Slík fjárfesting eykur lífsgæði íbúa, styrkir atvinnulíf og stuðlar að öflugu og blómlegu samfélagi til framtíðar. Mikilvægt er að lífæð samfélagsins, Vestmannaeyjahöfn haldi áfram að þróast og stækki með stórskipakanti á Eiðinu. Slík framkvæmd er fjárfrek og undirstrikar nauðsyn þess að sveitarfélagið skili hagnaði til að geta staðið undir framkvæmdakostnaði. Með sterkum rekstri og skýrri framtíðarsýn sýnir Vestmannaeyjabær að hægt er að sameina ábyrga fjármálastjórn og metnaðarfulla þjónustu í þágu samfélagsins alls.
Aníta Jóhannsdóttir, formaður fræðsluráðs og varabæjarfulltrúi.
Skipar 3. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum.