
Halldór B. Halldórsson fer í vettvangsferð í nýju myndbandi á Eyjafréttum. Hann heimsækir m.a. áhöfnina á sanddæluskipinu Álfsnesi, skoðar aðstæður við kjarnaboranir og rannsóknir á berglögum á Eiðinu og tekur að lokum stöðuna á höfninni og þeim framkvæmdum sem þar standa yfir.
Sjónum er fyrst beint að vinnunni í og við Landeyjahöfn, þar sem áhöfn Álfsness vinnur við krefjandi aðstæður. Það er auðvelt að gleyma því í daglegri umræðu hversu flókið verkefnið er og hversu mikið reynir á fólkið sem stendur vaktina við að halda höfninni opinni.
Á bak við verkin eru einstaklingar sem leggja sig fram af fagmennsku og vilja gera sitt allra besta fyrir samfélagið. Umræðan getur stundum orðið hörð, en mikilvægt er að muna að þar eru að störfum manneskjur sem bera ábyrgð við erfiðar aðstæður og eiga skilið sanngjarna umfjöllun.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.