Ágæt veiði hjá Eyjunum
Eyjarnar í heimahöfn. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Vestmannaeyjatogararnir Bergey VE og Vestmannaey VE hafa fiskað ágætlega að undanförnu. Þetta kemur fram í frétt á vef Síldarvinnslunnar. Bergey landaði fullfermi í Þorlákshöfn á sunnudag, Vestmannaey landaði einnig fullfermi í Grindavík í gær.

Heimasíðan heyrði hljóðið í skipstjórunum og voru þeir allir ágætlega sáttir við veiðina. Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergey, sagði að túrinn hefði verið einfaldur og þægilegur. „Við byrjuðum á að taka eitt hol á Síðugrunni en síðan kom til hrygningarlokunar þar og þá færðum við okkur á Öræfagrunn. Á Öræfagrunni veiddist jafnt og þétt og við vorum einungis tvo sólarhringa að veiðum. Aflinn var langmest ýsa . Veðrið var hið fínasta á meðan veitt var en við fengum dálítinn kalda á landleiðinni,” sagði Jón.

Egill Guðni Guðnason, skipstjóri á Vestmannaey, sagði að þeirra túr hefði verið mjög sambærilegur túrnum hjá Bergey. „Við byrjuðum á Síðugrunni og þegar lokun gekk í gildi þar færðum við okkur á Öræfagrunn. Það gekk vel að fiska og aflinn var nánast eingöngu ýsa. Þetta var fyrsti túrinn í býsna langan tíma án bullandi brælu. Við fengum bongóblíðu og allir voru kátir og hressir. Við munum halda til veiða á ný fljótlega eftir löndun og þá verður haldið á Selvogsbankann sem er að opnast á ný að loknu hrygnngarstoppi,” sagði Egill Guðni.

Nýjustu fréttir

Kynningarfundur um verndaráætlun Surtseyjar
Styrkir afhentir við hátíðlega athöfn í Oddfellow – uppfært
Humar í fyrsta sinn á Matey
Vel veiðist hjá Eyjunum
​​Kjörsókn dróst saman í ​Eyjum
Samgönguvandinn bitnar á Eyjagöngum
Kristín Klara í lokahóp u-19
„Það er ekki hlutverk ríkisins að bæta þetta tjón“
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.