Golfvöllurinn í Eyjum tilnefndur til alþjóðlegra verðlauna

Golfvöllurinn í Eyjum hefur verið tilnefndur til verðlauna á World Golf Awards 2026, sem teljast meðal virtustu alþjóðlegu viðurkenninga í heimi golfíþróttarinnar. Kom þetta fram á heimsíðu Golfklúbbs Vestmannaeyja. Völlurinn fær tilnefningu í tveimur flokkum, annars vegar sem besti golfvöllur Evrópu og hins vegar sem besti golfvöllur Íslands 2026. Tilnefningar eru byggðar á mati fagfólks […]

Aníta sækist eftir 2. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins

Aníta Jóhannsdóttir hefur tilkynnt á samfélagsmiðlum að hún hyggist gefa kost á sér í 2. sæti í komandi prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum. Í tilkynningu sinni segist Aníta, sem er fædd og uppalin í Eyjum, vilja leggja sitt af mörkum til áframhaldandi uppbyggingar samfélagsins. „Sem fædd og uppalin Eyjakona vil ég leggja mitt af mörkum til […]

Enginn úr núverandi meirihluta gefur kost á sér áfram

meirihlutinn_2022

Bæjarmálafélagið Fyrir Heimaey mun ekki bjóða fram lista í bæjarstjórnarkosningunum í Vestmannaeyjum í vor. Ákvörðunin var tekin á fundi félagsins í dag. Í tilkynningu segir að félagið sé ekki stjórnmálaflokkur og því sé þátttaka í kosningum ekki sjálfgefin. „Nú látum við gott heita,“ segir jafnframt í yfirlýsingunni. Fyrir Heimaey, H-listinn, hefur haft forystu í bæjarstjórn […]

Síðasti séns! Taktu þátt í að móta menningarstefnu Vestmannaeyja

default

Nú styttist í að frestur til að taka þátt í könnun um menningarstefnu Vestmannaeyja renni út. Á miðnætti annað kvöld lokar könnunin og því er síðasti séns fyrir íbúa að koma sínum sjónarmiðum á framfæri og hafa áhrif á stefnumótun í menningarmálum sveitarfélagsins. Hér að neðan má sjá nánar um könnunina og hvernig má bera […]

Jóna Sigríður gefur ekki kost á sér áfram

Jóna Sigríður Guðmundsdóttir hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér á lista bæjarmálafélagsins Fyrir Heimaey í komandi sveitarstjórnarkosningum í Vestmannaeyjum. Hún hefur setið í bæjarstjórn undanfarin átta ár og segist ganga sátt frá borði, þakklát fyrir traustið og reynsluna sem starfið hefur fært henni. Jóna Sigríður tilkynnti þetta á samfélagsmiðlum í morgun: Kæru vinir, […]

Páll gefur ekki kost á sér

Páll Magnússon, bæjarfulltrúi H-listans og forseti bæjarstjórnar Vestmannaeyja hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til áframhaldandi setu í bæjarstjórn þegar kjörtímabilinu lýkur í vor. Hann segist stíga til hliðar sáttur og stoltur af þeim árangri sem náðst hafi í rekstri og stjórn bæjarins á undanförnum árum. Pistil Páls má lesa hér að neðan. Góðir […]

Íris gefur ekki kost á sér áfram hjá Fyrir Heimaey

Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyja, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér á framboðslista hjá bæjarmálafélaginu Fyrir Heimaey í komandi sveitarstjórnarkosningum. Hún greinir frá ákvörðuninni í færslu á samfélagsmiðlum þar sem hún þakkar fyrir traustið síðustu átta ár, rifjar upp árangur kjörtímabilanna og segist stolt af þeim grunni sem lagður hefur verið að áframhaldandi vexti […]

Sækist eftir 2. sæti

Ég sækist eftir 2. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í prófkjörinu þann 13. mars nk. Ég er þakklát og auðmjúk gagnvart því að hafa sl. fjögur ár fengið tækifæri til þess að taka ábyrgð og vera í forystu fyrir samfélagið okkar. Þessi ár hafa verið lærdómsrík og gefandi. Það sem hefur drifið mig áfram er væntumþykja […]

Þetta snýst um fólkið mitt og bæinn minn

eythor_h_cr

Ég hef alltaf talið mig heppinn að hafa alist upp og eiga heima í Vestmannaeyjum. Hér hef ég byggt upp fjölskyldu mína, hér hef ég unnið mín verk og hér á ég heima. Ég er giftur, tveggja barna faðir og afi nokkurra barnabarna – og þau eru ótrúleg blessun í mínu lífi. Og það er […]

Stormurinn varð að lagi

Edited in Tezza with: ESPRESSO

​Vestmannaeyska hljómsveitin Memm hefur sent frá sér glænýtt lag og kveður febrúarmánuð með laginu Febrúar. Lag og texti voru samin í febrúar fyrir ári síðan, þegar vonskuveður helltist yfir land og þjóð. Úr varð lag sem fangar stemninguna, kraftinn, rokið og kuldann sem flest okkar þekkjum.   (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.