Jóna Sigríður gefur ekki kost á sér áfram
Jóna Sigríður Guðmundsdóttir

Jóna Sigríður Guðmundsdóttir hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér á lista bæjarmálafélagsins Fyrir Heimaey í komandi sveitarstjórnarkosningum í Vestmannaeyjum. Hún hefur setið í bæjarstjórn undanfarin átta ár og segist ganga sátt frá borði, þakklát fyrir traustið og reynsluna sem starfið hefur fært henni.

Jóna Sigríður tilkynnti þetta á samfélagsmiðlum í morgun:

Kæru vinir,
Ég hef tekið þá ákvörðun að gefa ekki kost á mér á lista bæjarmálafélagsins Fyrir Heimaey fyrir næstu sveitarstjórnarkosningar. Ég hef setið í bæjarstjórn síðastliðin átta ár og geng sátt frá borði reynslunni ríkari. Á þessum tíma hef ég kynnst mörgu góðu fólki sem hefur unnið ötullega fyrir samfélagið okkar. Ég er afar þakklát fyrir það traust sem mér hefur verið sýnt og að hafa fengið tækifæri til að gera samfélagið okkar betra.
Takk fyrir!

Nýjustu fréttir

Allison Clark tryggði ÍBV jafntefli með marki í blálokin
Staða mála hjá Herjólfi
Embla Harðardóttir sleit krossband gegn FH
Rannsóknarhola Eyjaganga komin á beinu brautina á ný
Herjólfur með sjö ferðir til Landeyjahafnar í dag
Geta Eyjastúlkur haldið pressunni á Breiðablik?
Díana Dögg og Andrea spila oddaleik um þýska meistaratitilinn
Herjólfur til Þorlákshafnar
viðburðir
Sa Portret 02022026 1
27. maí 2026
08:30
Hringferð SA í Akóges-salnum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.