Páll Magnússon, bæjarfulltrúi H-listans og forseti bæjarstjórnar Vestmannaeyja hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til áframhaldandi setu í bæjarstjórn þegar kjörtímabilinu lýkur í vor. Hann segist stíga til hliðar sáttur og stoltur af þeim árangri sem náðst hafi í rekstri og stjórn bæjarins á undanförnum árum. Pistil Páls má lesa hér að neðan.
Góðir Eyjamenn og annað fólk!
„Ég hef ákveðið að gefa ekki kost á mér til áframhaldandi setu í bæjarstjórn Vestmannaeyja þegar kjörtímabilinu lýkur nú í vor. Þetta geri ég sáttur, glaður og stoltur með þann árangur sem náðst hefur í rekstri og stjórn bæjarins þau fjögur ár sem ég hef setið í bæjarstjórn – og raunar öll átta árin sem bæjarmálafélagið Fyrir Heimaey hefur verið í forystu hér í bænum,“ segir Páll Magnússon, bæjarfulltri H-listans og forseti bæjarstjórnar á Fésbókarsíðu sinni.
„Ég er þakklátur fyrir þann stuðning sem bæjarbúar hafa sýnt H-listanum – og félögum mínum í bæjarstjórn fyrir að treysta mér til að vera forseti bæjarstjórnar á meðan ég hef setið þar.
Þetta er ekki kveðjustund – það eru tæpir þrír mánuðir eftir af kjörtímabilinu – og ég mun gera nánari grein fyrir því sem áunnist hefur þegar nær dregur. Þangað til: Takk fyrir mig – og áfram Vestmannaeyjar!“
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.