Enginn úr núverandi meirihluta gefur kost á sér áfram
Fyrir Heimaey býður ekki fram í vor
meirihlutinn_2022
Jóna Sigríður Guðmundsdóttir, Íris Róbertsdóttir, Páll Magnússon, Helga Jóhanna Harðardóttir og Njáll Ragnarsson. Eyjar.net/ÓPF

Bæjarmálafélagið Fyrir Heimaey mun ekki bjóða fram lista í bæjarstjórnarkosningunum í Vestmannaeyjum í vor. Ákvörðunin var tekin á fundi félagsins í dag.

Í tilkynningu segir að félagið sé ekki stjórnmálaflokkur og því sé þátttaka í kosningum ekki sjálfgefin. „Nú látum við gott heita,“ segir jafnframt í yfirlýsingunni.

Fyrir Heimaey, H-listinn, hefur haft forystu í bæjarstjórn Vestmannaeyja í tvö kjörtímabil, alls átta ár. Í tilkynningunni kemur fram að félagið sé afar stolt af þeim árangri sem náðst hafi í rekstri og stjórn bæjarfélagsins á tímabilinu, sem og þeim áherslum sem beitt hafi verið í þágu samfélagsins.

Ákvörðunin kemur í kjölfar þess að allir bæjarfulltrúar félagsins hafa tilkynnt að þeir hyggist ekki gefa kost á sér áfram. Það eru Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri, Páll Magnússon, forseti bæjarstjórnar, og Jóna Sigríður Guðmundsdóttir, sem öll greindu frá ákvörðun sinni í morgun.

Í lok tilkynningar þakkar Fyrir Heimaey öllum þeim sem stutt hafa félagið og starfað á þess vegum að bæjarmálum síðustu átta ár og segir framlag þeirra hafa verið mikilvægt til að gera bæinn betri.

Með þessari ákvörðun liggur fyrir að enginn fulltrúi núverandi meirihluta í bæjarstjórn mun gefa kost á sér áfram í komandi kosningum. Áður höfðu bæjarfulltrúar E-listans einnig tilkynnt að þau hygðust stíga til hliðar, þau Njáll Ragnarsson, formaður bæjarráðs, og Helga Jóhanna Harðardóttir, bæjarfulltrúi.

 

Nýjustu fréttir

Tannverndarvika
Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Útboð Vestmannaeyjabæjar um heilsurækt aftur til kærunefndar
Myndband frá höfninni: Steðji VE landar
Að loknu prófkjöri
Bærinn eignfærir lögfræðikostnað  
ÍBV tapaði gegn Haukum
Bæjarráð hafnar bótakröfu vegna gatnagerðar við Alþýðuhús
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.