Aníta sækist eftir 2. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
Aníta Jóhannsdóttir

Aníta Jóhannsdóttir hefur tilkynnt á samfélagsmiðlum að hún hyggist gefa kost á sér í 2. sæti í komandi prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum.

Í tilkynningu sinni segist Aníta, sem er fædd og uppalin í Eyjum, vilja leggja sitt af mörkum til áframhaldandi uppbyggingar samfélagsins. „Sem fædd og uppalin Eyjakona vil ég leggja mitt af mörkum til áframhaldandi uppbyggingar samfélagsins okkar,“ segir hún.

Aníta hefur tíu ára reynslu í fjármálum og rekstri hjá sjávarútvegsfyrirtækjum og segir þá reynslu nýtast vel í störfum fyrir bæjarfélagið. Hún þekki því vel bæði styrkleika og tækifæri atvinnulífsins í Eyjum.

Á yfirstandandi kjörtímabili hefur hún gegnt stöðu formanns fræðsluráðs Vestmannaeyja og jafnframt verið varabæjarfulltrúi. Hún segir þá reynslu hafa kennt sér hvað skipti mestu máli í sveitarstjórnarmálum.

„Sterk hagsmunabarátta, framsýn menntastefna og öflug samvinna eru lykilatriði í farsælu samfélagi,“ segir Aníta og bætir við að hún sé tilbúin að leggja sig alla fram fyrir framsækið og fjölskylduvænt samfélag.

Hún óskar eftir stuðningi í 2. sætið í prófkjörinu sem fram fer föstudaginn 13. mars.

Nýjustu fréttir

Plötuútgáfan hefur verið eitt stórt ævintýri
Gul veðurviðvörun á Suðurlandi
Ný bók Sigurgeirs fangar mál, menningu og sögu Vestmannaeyja 
Óli á Stapa leiðir gesti um fjölskyldusýningu í Svölukoti
Erna Sólveig – Hjálparstarf í Afríku og nám í Svíþjóð
Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Gabríela Máney
Blessuð sé minning starfshópsins
Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Bjarki Þór
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.