Mikilvægi hreyfingar

Í því ástandi sem skekur samfélagið hefur gildi og mikilvægi hreyfingar sjaldan verið jafn augljóst. Á tímum þar sem fjölmennar gleðistundir, veislur og samkomur virðast fjarlægur draumur er mikilvægt að hlúa m.a. að andlegri heilsu til að draga úr áhrifum félagslegrar einangrunar á almenna líðan. Styrkir ónæmiskerfið Fjölmargir þættir hafa áhrif á andlega heilsu og […]
Á hverju ætlum við að lifa?

Á næstu 30 árum þurfum við að skapa um 60.000 ný störf. Það jafngildir 2.000 störfum á ári eða um 40 nýjum störfum í hverri einustu viku næstu 30 árin! Því liggur beinast við að spyrja sig: Á hverju ætlum við að byggja verðmætasköpun í samfélaginu í framtíðinni? Höfum samt hugfast að þrátt fyrir að […]
Við eigum samleið

Nýlega tilkynnti ég ákvörðun mína um að sækjast eftir 1. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í prófkjöri sem fram fer í maí vegna alþingiskosninga í haust. Viðbrögðin hafa verið mikil og jákvæð og fyrir þau er ég afar þakklát. Það er vissulega stór ákvörðun að óska eftir umboði til starfa á vettvangi Alþingis og það hafði […]
Hvernig væri?

Vinstrihreyfingin grænt framboð í Suðurkjördæmi mun viðhafa forval um 5 efstu sætin vegna framboðslista hreyfingarinnar til Alþingis 25. sept. í haust. Nú þegar hefur nokkur hópur fólks ákveðið að gefa kost á sér í forvalinu bæði til 5 efstu sætanna en einnig til annarra sæta á listanum. Það sýnir að töluverður áhugi er á því […]
Vanhugsað innflytjendafrumvarp

Félagsmálaráðherra Framsóknar hefur lagt fram á Alþingi frumvarp um málefni innflytjenda. Megin tilgangur frumvarpsins er að samræma móttöku flóttafólks. Í greinagerð með frumvarpinu er setning sem vekur athygli en þar segir: „Með samræmdu móttökukerfi er unnið að því að tryggja flóttafólki jafna þjónustu óháð því hvernig það kemur til landsins.“ Hér þarf að staldra við […]
Ánægðir Eyjamenn!

Á gönguferð um helgina var ég að velta fyrir mér nýjum fréttum af því að Eyjamenn eru ekki aðeins ánægðastir allra landsmanna með búsetuskilyrði sín – heldur líka hamingjusamastir allra á Íslandi! Þá röðuðust upp í hausinn á mér ótrúlega margir jákvæðir hlutir sem hafa verið að gerast í Vestmannaeyjum síðustu misserin. Nefnum nokkra af […]
Bankasala á óvissutímum

Íslandsbanki er verðmæt eign í eigu almennings. Hann varð eign ríkissjóðs í uppgjöri um stöðugleikaframlög föllnu bankanna eftir efnahagshrunið 2008. Það var ekki síst fyrir einbeitni og festu fyrrum forsætisráðherra Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar og ríkisstjórnar hans, sem bankinn varð almenningseign og mikilvægt skref stigið í því að kom þjóðinni út úr hruninu. Ríkisstjórnin áformar að […]
Hreyfiseðill – hvað er það?

Átt þú erfitt með að bæta reglulegri hreyfingu í þinn lífsstíl? Þjáist þú af heilsufarsvandamáli sem hreyfing gæti haft jákvæð áhrif á? Þá gæti hreyfiseðill hentað þér vel. Hreyfingarleysi er meðal áhrifaþátta algengra og alvarlegra sjúkdóma. Hreyfiseðill er meðferðarúrræði við sjúkdómum eða einkennum þeirra sjúkdóma sem vitað er að regluleg hreyfing getur haft umtalsverð jákvæð […]
Verkfæri fyrir foreldra nútímans

„Með þig var aðal vandamálið að fá þig inn á kvöldin, með þá er aðal vandamálið að ég kem þeim ekki út úr húsi.“ Vinur minn sem á bræður sem eru talsvert yngri en hann sjálfur sagði mér að faðir sinn hefði útskýrt helsta muninn á að ala hann og bræður hans upp með framangreindri […]
Á að loka framtíðina inni?

Náttúruvernd er samofin þjóðarsálinni. Hún á sér uppsprettu og talsmenn í öllu litrófi stjórnmálanna. Sama má segja um loftslagsmálin. Stærsta framlag okkar til þeirra er orkuframleiðsla með endurnýjanlegum orkugjöfum. Atvinnuvegir og atvinnutækifæri komandi kynslóða munu byggja á þeim möguleikum sem felast í nýtingu orkunnar í landinu; til að skapa hér fjölbreytt og vel launuð störf […]