Karlalið ÍBV tekur á móti Fram í kvöld í Olísdeildinni en þetta er fyrsta umferðin eftir landsleikjahlé. ÍBV er í 5. sæti deildarinnar með 9 stig eftir 8 leiki en Fram er 9. og næst neðsta sæti með aðeins 4 stig. Eins og staðan Safamýrarliðsins sýnir, hefur gengi liðsins ekki verið gott það sem af er vetrar enda hafa lykilmenn helst úr lestinni vegna meiðsla en Fram fagnaði Íslandsmeistaratitli vorið 2013. Svipaða sögu er að segja af Íslandsmeisturunum 2014 því meiðsli hafa sett verulegan strik í reikninginn hjá ÍBV en nú horfir víst til betri vegar með það. Leikur liðanna hefst klukkan 18:00. Í kvöld fer fram heil umferð í Olísdeildinni en aðrar viðureignir eru Akureyri-Afturelding, Stjarnan-ÍR, HK-Haukar og Valur-FH.