Tapið gæti numið um 150 milljónum
Ljósmynd/flyplay.com

Fjórir lífeyrissjóðir eru meðal 20 stærstu hluthafa flugfélagsins Play sem nú stendur á tímamótum eftir að greint var frá yfirtökutilboði tveggja hluthafa félagsins í vikunni. Þessi hluthafar eru forstjórinn Einar Örn Ólafsson og Elías Skúli Skúlason, sem er varaformaður stjórnar. Hluthafar Play munu tapa miklum peningum ef líkum lætur, sagði í umfjöllun um málið  í þættinum Þetta helst á Rás 1 í dag.

Lífeyrissjóðurinn Birta er stærsti einstaki hluthafi Play með 10,35 prósenta hlut. Þrír aðrir lífeyrissjóðir eru í hópi 20 stærstu hluthafa Play: Lífsverk, Lífeyrissjóður Vestmannaeyja og Festa.

Lífeyrissjóður Vestmannaeyja átti í lok febrúar 1,8% hlut í félaginu. Rætt var við Hauk Jónsson, framkvæmdastjóra Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja í þættinum og kom fram í máli hans að hann tap sjóðsins gæti numið í kringum 150 milljónum. Hann sagði jafnframt að ekki hafi enn verið tekin ákvörðun um það innan sjóðsins hvort gengið yrði að yfirtökutilboðinu sem um ræðir.

Nýjustu fréttir

Dýptarmælingar fyrirhugaðar í Landeyjahöfn
Landsréttur hafnaði kröfu um gæsluvarðhald
Framkvæmdir í ferbrúar-blíðunni
„Þær halda utan um hjartað í Hljómey“ 
Skólamál og ábyrgð í opinberri umræðu
Eyjamenn með stórsigur í Suðurlandsslagnum
Eyjarnar landa í Eyjum í dag
Útför: Þórunn Pálsdóttir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.