Á fyrstu mánuðum þessa árs hefur orðið nokkur samdráttur í tekjum Vestmannaeyjabæjar þegar þær eru bornar saman við tekjur ársins 2013. �?annig drógust hafnargjöld saman um tæpar 29 milljónir á fyrstu þremur mánuðunum miðað við sama tíma í fyrra. Tekjusamdrátturinn í hafnargjöldum var rúm 33% á milli ára.
�??Eins og gefur að skilja dragast aðrar tekjur í bænum einnig saman þegar minni afli berst að landi. Samdrátturinn í útsvarstekjum fyrstu 4 mánuði ársins eru um 80 milljónir. Er þetta samdráttur um rúm 12% frá sama tíma í fyrra. Athygli vekur þó að langstærsti hluti þessas samdráttar er að koma fram núna í apríl, samdrátturinn frá sama mánuði í fyrra er um 74 milljónir. Skýringin á því er loðnubresturinn í apríl.
�??Bæjarfélag sem okkar lifir á sjávarútvegi og við verðum ætíð að vera viðbúin svona höggum í tekjum, bara rétt eins og sjómenn og aðrir sem eiga laun sín undir veiðum og vinnslu,�?? sagði Elliði Vignisson, bæjarstjóri í samtali við Eyjafréttir. �??�?egar við fáum á okkur tekjusamdrátt upp á rúmlega 100 milljónir á þremur til fjórum mánuðum þá verðum við að geta mætt því með því að eiga borð fyrir báru í rekstrinum. Við lokum ekki bara leikskóla, hættum tónlistakennslu eða eitthvað slíkt. Blessunarlega er núna borð fyrir báru í rekstri Vestmannaeyjabæjar og því getum við mætt þessu án þess að það bitni á þjónustu við bæjarbúa og án þess að við þurfum að fara í dýra lántöku. Sterk rekstrarstaða seinustu ára skiptir sköpum í svona stöðu. �?essi tekjusamdráttur núna er ef til vill merki um það sem koma skal og að eitthvað sé farið að hægjast á hjólum sjávarútvegsins. �?g tel að minnsta kosti fulla ástæðu fyrir frambjóðendur allra framboða að vera meðvitaðir um að ganga hægt um gleðinnar dyr og vera þess minnug að helsta hlutverk bæjarfulltrúa er að sinna rekstri sveitarfélagsins af vandvirkni og vernda sterka stöðu. Dæmin sýna að það tekur ekki nema örskamman tíma að snúa sterkri stöðu í erfiða og stundum vonlausa.�??