Frekari framkvæmdir við hafnarmannvirki, legukant, ekjubrýr og landgöngubrúr í Vestmannaeyjahöfn er ástæða þess að nýr Herjólfur siglir ekki milli lands og eyja í gær eins og vonir stóðu til.
„Við gerðum ráðstafanir í Landeyjahöfn en töldum að þetta yrði í góðu lagi í Vestmannaeyjum. Síðan kom í ljós að það er öruggara að bæta þá aðstöðu,“ segir G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar í samtali við Eyjafréttir um helstu orsök tafa á áætlunarsiglingum nýja Herjólfs. „Fyrir fram var reiknað með að það væri nóg að hafa þau dekk til varnar sem eru þar nú, en við nánari skoðun var talið betra og öruggara og setja upp meiri og öflugri búnað, svo kallaða fendera. Einnig þurfa þeir að vera hærri en bryggjan. Það er gert bæði til að tryggja að ekki komið til skemmda á Herjólfi sem leggur jú að og fer frá sjö sinnum á dag. Einnig mun betri búnaður auðvelda mönnum að leggja að á skemmri tíma en ella.“ Hann sagðist ekki þora að fara með það hversu langan tíma þær framkvæmdir muni taka. „Við erum að skoða þetta. Það tekur einhvern tíma.“
Nýja skipið í slipp í september
Í ljós kom galli á öðrum stöðugleikaugganum á nýja ksipinu en þar kemst sjór í olíuna. „Þótt það komi ekki í veg fyrir siglingar ferjunnar þarf að taka það í slipp og laga þennan galla, það er á byrgð þess sem smíðaði skipið og/eða framleiðand uggans. Herjólfur fer því í slipp á Akureyri í september,“ sagði G. Pétur.
„Það er þannig séð ekki neinn gríðarlegur þrýstingur að hefja siglingar með nýju ferjunni af því gamli Herjólfur sinnir þessu alveg. Þeir afkastá álíka miklu. Það er betra að gera þetta þannig að það sé allt í góðu lagi,“ segir G. Pétur, en hætta er á skemmdum á skipi eða bryggju sé viðlegukantur ekki í lagi.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.