�?arf einhvern meirihluta og minnihluta í bæjarstjórn?
Project1_Layout 1
Kosningarnar fóru eins og þær fóru. – �?að sem maður óttast að verði helstu afleiðingar þeirra er að myndast hafi vík milli vina; sárindi; kannski illindi. – Ef svo er þá er það einmitt það sem Vestmannaeyingar þurfa síst á að halda.
�?arf annars nokkuð að mynda meirihluta og þá minnihluta. Getur fólk ekki unnið saman sem ein heild í bæjarstjórn að málefnum Vestmannaeyja. – Nú eru flestallir bæjarfulltrúarnir úr Sjálfstæðisflokknum þannig að varla er mikill pólitískur ágreiningur milli þeirra. Og eftir því sem ég hef lesið og heyrt í Njáli Ragnarssyni þá er hann bara heilsteyptur flottur strákur sem ég held að allir geti unnið með. Og svo er Elliði hættur, sem var nú kannski ástæðan fyrir H-lista framboðinu.
Hvað er þá í veginum fyrir því að nú verði myndaður 7 manna meirihluti/bæjarstjórn í Vestmannaeyjum sem fari með stjórnun bæjarins og ef einhver bæjarfulltrúi er ekki sammála einhverjum málum þá greiðir viðkomandi bara atkvæði samkvæmt því. Er það ekki allt í lagi?
– Og þetta, – að mér finnst, úrelta fyrirkomulag – að það þurfi meiri- og minnihluta í litlum bæjarfélögum, sem meira en allt annað þurfa á samstöðu að halda, ættum við Vestmannaeyingar að hafa sem liðna tíð.
Í síðustu bæjarstjórn voru mál oftast afgreidd 7-0 og það meira að segja í stórum málum, eru það ekki sterk rök fyrir þessum sjónarmiðum mínum.
Áfram Vestmannaeyjar
Gísli Valtýsson

Nýjustu fréttir

Tvíþætt staða orkuskipta
Netöryggisfræðsla fyrir foreldra grunn- og framhaldsskólanemenda
Áskriftarkort sundlaugagesta framlengd
Eyjarnar landa fyrir austan
Sýningin Geological Rhapsody opnar á morgun
Nýtt fyrirkomulag í Uppbyggingarsjóði Suðurlands
Íþróttahátíð ÍBV í kvöld
Bærinn niðurgreiðir heimsendan mat um 53%
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.