Þjónustumiðstöð vegna Suðurlandskjálftanna 29. maí sl. er starfrækt í Tryggvaskála á Selfossi. Þeir sem orðið hafa fyrir tjóni vegna jarðskjálftanna sem ekki fæst bætt úr tryggingum eða telja sig ekki hafa fengið fullnægjandi úrlausn sinna mála geta snúið sér til þjónustumiðstöðvarinnar í Tryggvaskála. Þar verður tekið á móti öllum erindum og þau flokkuð og skráð.