Enn liggur ekki fyrir hvort ferðir Herjólfs verði þrjár eða fjórar yfir vetrartímann. Samkvæmt núverandi áætlun er gert ráð fyrir fjórum ferðum alla daga vikunnar til 1. október. Þá verða þrjár ferðir mánudaga til fimmtudags og laugardag en fjórar ferðir föstudag og sunnudag. Bæjaryfirvöld og Eimskip gerðu samkomulag þess efnis að greiða fyrir aukaferðir, þannig að tryggt væri að minnst yrðu ferðir Herjólfs fjórar, alla daga ársins. Því tilboði hefur ekki verið svarað.