Eyjamenn gátu heldur betur rifið sig í gang í Pepsi-deild karla í gærkvöldi þegar að liðið heimsótti Keflvíkinga. Fyrir leikinn hafði Keflavík einungis eitt stig að loknum sex umferðum, ÍBV hafði fjögur eftir sigur á Víkingi.
Keflvíkingar skiptu um þjálfara í fyrradag og því nýjar áherslur hjá þjálfarateyminu. �?að virtist virka vel þar sem þeir byrjuðu leikinn mun betur.
Eftir nítján mínútna leik komust heimamenn yfir með marki frá Herði Sveinssyni. ÍBV fékk vítaspyrnu stuttu síðar þegar Ian Jeffs var felldur í teignum. Jonathan Glenn steig á punktinn og skoraði af litlu öryggi.
Einar Orri Einarsson og Leonard Sigurðsson skoruðu tvö mörk á lokakaflanum fyrir Keflvíkinga og sigurinn því þeirra. Grátlegt fyrir Eyjamenn sem eru því enn í fallsæti og nú jafnir Keflvíkingum með fjögur stig.