Með þessari frétt má finna nýtt myndband eftir þau Jóhönnu Ýr Jónsdóttur og Ágúst �?skar Gústafsson, Gústa læknir. Myndbandið fjallar um þunglyndi en stefna þeirra Gústa og Jóhönnu er að opna umræðuna um þunglyndi, brjóta niður fordóma gegn því og benda á úrræði. Jafnframt stefna þau á stofnun samtaka, Geðfatlann sem hefur þessi baráttumál á sinni stefnuskrá.
�??Eitt algengasta mein sem fólk upplifir á lífsleiðinni er þunglyndi. Vissulega eigum við öll misgóða daga, upplifum depurð eða kvíða sem varla telst sem þunglyndi, en þunglyndi er samt algengarar en við áttum okkur á, �?? sagði Gústi í samtali við Eyjafréttir.
�??Einhverra hluta vegna virðist það enn vera feimnismál að ræða þetta opinskátt þrátt fyrir að við höfum jafnvel upplifað það á eigin skinni eða þekkjum einhvern sem glímir við sjúkdóminn. Sérstaklega virðast karlmenn eiga erfitt með að játa slíka slæma vanlíðan. Vegna þessarar feimni draga margir hverjir það á langinn að leita sér hjálpar og ómeðhöndlað getur það haft alvarlegar afleiðingar í för með sér.�??
Varðandi myndbandið, þá fékk Jóhanna Ýr Eyjastelpuna Sif Hjaltdal Pálsdóttur aftur í lið með sér en Sif sér um teikningar í myndbandinu, líkt og hún gerði í fyrra myndbandi Jóhönnu sem hún gerði um einhverfu. Gústi sér um tónlist og upptökur fyrir myndbandið með aðstoð Gísla Stefánssonar, sem sá um útsetningar. Titill myndbandsins er að sjálfsögðu Geð-fatlinn.