Árlega gerir Gallup þjónustukönnun í sveitarfélögum landsins. Á síðasta fundi Fjölskyldu- og tómstundarráðs var kynntur sá hluti sem snýr að ráðinu.
�?egar spurt var hversu ánægðir íbúar væru með aðstöðu til íþrótta-
iðkunar í sveitarfélaginu kom í ljós að af þeim sem tóku afstöðu voru 98% ánægð. �?egar spurt var hversu ánægðir íbúar væru með þjónustu við barnafjölskyldur í sveitarfélaginu kom í ljós að af þeim sem tóku afstöðu sögðust 83% ánægð. �?egar spurt var hversu ánægðir íbúar væru með þjónustu við fatlað fólk í sveitarfélaginu kom í ljós að af þeim sem afstöðu tóku sögðust 78% vera ánægð. Allt er þetta vel er yfir landsmeðaltali. Rétt er að óska starfsmönnum sérstaklega til hamingju með þennan árangur og er hann vitnisburður um þann metnað sem ríkir meðal starfsmanna sveitarfélagsins.
Nýjar þjónustuíbúðir
Klárlega er hægt að gera betur og innan skamms opnar nýbygging við Hraunbúðir sem bæta mun mikið þjónustu við heimilisfólk sem glímir við heilabilun eins og Alzheimer. Hafinn er undirbúningur að nýjum þjónustuíbúðum fyrir aldraða í Eyjahrauni, byrjað er að hanna nýtt sambýli fyrir fatlaða og fjölga sérhæfðum leiguíbúðum fyrir þá svo eitthvað sé nefnt.
Vel tekist til í Heimaey
Á síðasta fundi ráðsins var kynnt starfsemi Heimaeyjar – vinnu- og hæfingarstöðvar. Í Heimaey fer fram dagþjónusta, hæfing, iðja, starfsþjálfun og vernduð vinna samkvæmt lögum um málefni fatlaðs fólks og eftir reglugerð um atvinnumál fatlaðs fólks. Ánægjulegt er að sjá hversu vel hefur tekist til með þær breytingar sem gerðar voru á húsnæðinu og þjónustu í málaflokknum. Rétt er að benda á að sífellt er þörf á nýjum heppilegum verkefnum fyrir starfsmenn í verndaðri vinnu og eru fyriræki og félagasamtök hvött til að nýta sér þjónustu sem þar stendur til boða.
Ný álma og starfsmönnum fjölgað á Hraunbúðum
Framkvæmdum við nýja álmu við Hraunbúðir er að ljúka og markmiðið er að byrja að nýta hana í febrúar. Hjúkrunarforstjóri er að skipuleggja starfsmannahaldið og starfsemina en starfsmönnum í umönnun mun fjölga við þessar breytingar. Með þessu fjölgar herbergjum á Hraunbúðum og býr þá stofnunin yfir herbergjum í samræmi við þær heimildir sem hún hefur fyrir dvalar- og hjúkrunarrýmum. Nýja álman býður upp á möguleika til að mæta sérhæfðum þörfum þeirra sem mestu þjónustuna þurfa, s.s. fólk með heilabilun. Í nýrri álmu verður salur sem nýtist sem matar- og samverustaður.